fasteignasölur.is
Perla Inv. - Hágæða íbúð á með þaksvölum á dásamlegum stað
1 af 6

Um eignina

PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.

Perla Investments kynnir:Hágæða íbúð á með þaksvölum á dásamlegum stað

Stórglæsileg íbúð á efstu hæð í mjög nútímalegu og vandlega hönnuðu fjölbýli í  Santa Rosalía Resort – afgirtu glæsilegu hverfi staðsettu í nágrenni við bæinn Torre Pacheco – Murcia. En íbúðabyggðin er hönnuð í kringum stærsta manngerða stöðuvatn í Evrópu.

Íbúðin er með 3 svefnherbergjum og 2 baðherbergjum með hita í gólfi, bjart og rúmgott alrými með fullbúnu eldhúsi með hágæða heimilistækjum, borðstofu og stofu. Einnig fylgja mjög rúmgóðar svalir á aðalhæð sem snúa í suður. Eigninni fylgir einnig sér bílastæði í bílakjallara og geymsla, en auk þess fylgir einnig aðgangur að glæsilegum sameiginlegum garði með sundlaug og grænum svæðum með bekkjum.

Erum með mikið úrval eigna á þessu sama svæði.

Í þessu stórglæsilega og metnaðarfulla íbúðarhverfi hefur verið hugað að öllum smáatriðum og gefst íbúum þar kostur á að njóta þess að vera á „ströndinni“ allt í kringum vatnið, snæða á sælkera veitingastöðum og hafa aðgang að fjölbreyttri hágæða íþróttaaðstöðu.... svo eitthvað sé nefnt.

Skammt frá eru bæirnir Torre Pacheco og Los Alcázares þar sem alla þjónustu, s.s. heilsugæslu, skóla o.fl. er jafnframt að finna. Og hafirðu áhuga á að heimsækja hinar sögulegu borgir Murcia eða Cartagena, fara í Dos Mares verslunarmiðstöðina, á hinar annáluðu strandir Mar Menor eða á alþjóðlega flugvöllinn í Corvera þá ertu alltaf innan 20 mínútur að keyra þangað að heiman.

Hafðu samband við okkur til að fá frekari upplýsingar!

Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á https://perlainvest.com/eign/2143/ibud/nybygging/spann/alicante/torre-pacheco/torre-pacheco/            

Ref: P686

Fylgdu okkur á Facebook - www.facebook.com/Perlainvest 

Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com .  Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.

Bjóðum einnig uppá á leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/

Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com 

Perla Inv. - Hágæða íbúð á með þaksvölum á dásamlegum stað

1053 Spánn - Costa Blanca
75.900.000 kr.696 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2025TegundFjölbýlishúsStærð109 m²Herbergi4FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangC.C. Los Dolses nº 142, Villamartin, Orihuela Cost, 03189Sími893-3911

Allar 6 myndir

Upp ↑