fasteignasölur.is
Sóltún 16
1 af 29

Um eignina

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu. Virkilega snyrtilegt og vel við haldið, 146,3 fm, fjögurra herbergja parhús við Sóltún 16 á Selfossi.  Húsið er byggt úr timbri árið 2002, klætt með sléttstení og á þaki er járn. Stór sólpallur með skjólgirðingu og geymsluskúr.  Stórt hellulagt bílaplan.  Húsið stendur á eignarlóð í botnlangagötu, miðsvæðis á Selfossi.

Nánari lýsing: Flísalögð forstofa með stórum fataskáp. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, fataskápar í þeim öllum. Stofa og borðstofa í opnu og björtu rými, með uppteknu lofti þar sem er útgengt út á sólpall með skjólgirðingu. Eldhús, spónlögð eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi, vönduðum heimilistækjum og flísalagt er á milli borðplötu og efri skápa. Snyrtilegt baðherbergi, innrétting, handklæðaofn, flísalögð "walk in" sturta, wc og baðkar. Í miðrými hússins er sjónvarpshol. Innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi en þar er nýleg innrétting.  Snyrtilegur bílskúr með uppteknu lofti, geymslulofti og innst í honum er geymsla.  Gönguhurð er úr bílskúr út í bakgarð.  
Virkilega falleg eign.

Hringið og bókið skoðun.

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"      
 
                                                                                                                
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan HÚS því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · HÚS fasteignasala
79.900.000 kr.546 þ./m²
+226,1% á 13 árum
8. nóvember 2013Fyrsta sala
24.500.000 kr.167 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Sóltún 16

800 Selfoss
79.900.000 kr.546 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2002TegundRað-/parhúsStærð146,3 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22594404Fasteignamat82.250.000 kr.Brunabótamat76.750.000 kr.
Skráð hjá
HÚS fasteignasala
HeimilisfangAusturvegi 26, Selfoss, Strandgötu VestmannaeyjumSími497-1155

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 29 myndir

Upp ↑