fasteignasölur.is
Ofanleitisvegur svæði L-4 0
1 af 100

Um eignina

Ofanleiti, svæði L-4

Einbýlishús, verkstæði/þjónustumiðstöð, 5 smáhýsi (það 6. í byggingu), þvottahús/gámur og mikið landsvæði/byggingarréttir sem bjóða uppá mikla möguleika auk beitilands.  Svæðið hefur leyfi til reksturs gistiheimilis/smáhýsa og seljast allar eignir saman og með öllum búnaði og húsgögnum sem tilheyrir gistingunni.  Heildarstærð húsnæðis er um 350 fm og skiptist það svo:

Einbýlishús skráð 112,5 en gólfflötur er meiri (efri hæð undir súð að hluta og kjallari óskráður).  Húsið er af timbri og klætt með bárujárni. Þrjú svefnherbergi (svefnpláss fyrir 8 manns),ásamt baðherbergi er á efri hæð.  Gott alrými á hæðinni, baðherbergi og w cog wc í forstofu.

Þjónustuhús/verkstæði.  Notað í dag sem trésmíðaverkstæði eignin er skráð um 80 fm en óskráðir eru 40 fm.1.250 fm lóð fylgir þessari eign og mögulegt að stækka þetta hús og byggja ofan á það.

Smáhýsi nr. 1.  16,6 fm, fullbúið, svefnpláss fyrir þrjá, fullbúið.

Smáhýsi nr. 2.  11,5 fm, fullbúið, svefnpláss fyrir tvo, fullbúið.

Smáhýsi nr. 3.  18,5 fm, fullbúið, svefnpláss fyrir tvo, fullbúið, byggt árið 2021 en er óskráð í fasteignaskrá

Smáhýsi nr. 4.  21,3 fm, fullbúið, svefnpláss fyrir tvo til þrjá, verður tilbúið til notkunar/útleigu fyrir sumarið 2026

Smáhýsi nr. 5.  21,3 fm, fullbúið, svefnpláss fyrir tvo til þrjá, verður tilbúið til notkunar/útleigu fyrir sumarið 2026

Smáhýsi nr. 6, er í byggingu

þvottarhús/gámur, 14,4 fm, einangraður gámur með þvottavélum, þurrkara og stórri strauvél.

Mikið landsvæði sem er í deiliskipulagi og möguleikar til fjölgunar smáhýsa og frekari bygginga. s

Möguleiki á að taka aðra fasteign, íbúð eða íbúður uppí hluta kaupverðs.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Bragason, lögmaður og lögg. fasteignasali, hb@eyjar.is og gsm 8931068.

 

Ofanleitisvegur svæði L-4 0

900 Vestmannaeyjar
180.000.000 kr.594 þ./m²
Fjölbýlishús8 svefn · 7 bað
Byggingarár1990TegundFjölbýlishúsStærð303 m²Herbergi5InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF21845252Fasteignamat128.103.000 kr.Brunabótamat90.160.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasala Vestmannaeyja
HeimilisfangKirkjuvegur 23, 900Sími488-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 100 myndir

Upp ↑