fasteignasölur.is
Tunguhella 10V
1 af 14

Um eignina

Jöfur atvinnuhúsnæði s. 534-1020 kynnir: 

Til sölu að birtri stærð 92,1 m² geymslu-/ iðnaðarhúsnæði við Tunguhellu 10V í Hafnarfirði. Heildarflatarmál eignarinn er í dag samtals 151,6 m² og eru því óskráðir fermetrar 59,5 Laust 1. júní 2027

Nánari lýsing:
Neðri hæð: Vinnusalur með stórri iðnaðarhurð (4,0 x 4,35m.) með rafmagnsopnun og  inngönguhurð, kvarts epoxý á gólfi og flísar. Kaffiaðstaða með gluggum og opnanlegu fagi, 60x60 cm. flísar á gólfi og veggjum. Skápainnréttingar með borðplötu og vaski. Skolvaskur og 2 hitastýrð tæki. Wc með speglaskáp, vegghengdu salerni og glugga með opnanlegu fagi. Brunaútgangur að aftanverðu hússins og stigi upp á efri hæð.

Efri hæð: Stálstigi upp á efri hæð og hringstigi með sérinngangi að aftanverðu. Herbergi/ skrifstofa með glugga yfir vinnusal. Hurð inn í stúdíó með góðri eldhúsinnréttingu, helluborði, tauþvottavél og ísskáp, og gluggum með opnanlegu fagi. Geymslurými / herbergi með rennihurð. Baðherbergi með speglaskápi, vegghengdu salerni og sturtu. Brunútgangur niður hringstiga ásamt fellistiga að utanverðu. Vinilparket á gólfi. Rýmið er með loftskiptiútbúnaði.

- Gólfhiti á neðri hæð, hefðbundið ofnakerfi á efri hæð.
- Skilveggir á milli eignarhluta eru byggðir úr 120 mm. timburgrind, c/c 60 cm. er klæðist með plötuklæðningu beggja vegna; 1x 12 mm. spónaplötur og 1x12 mm. gips hvoru megin og einangrað með 120 mm. steinull.
- Undirstöður og botnplata eru staðsteypt með burðarmiklum gólfum.
- Meginburðargrind hússins er úr límtré með innsteyptum festingum. Allt milliburðarvirki og þakásar er úr límtré. Allar stálfestingar eru heitgalvaníseraðar.
- Útveggja- og þakeiningar eru af gerðinni "QuadCore" frá Kingspan í Englandi.
Húsnæðið er án virðisaukaskattskvaðar.
Húsnæðið er í leigu og getur verið laust í fyrsta lagi þann 1. júní 2027.

Um er að ræða glæsilegt bil þar sem engu er til sparað og þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.


Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali í síma 897 7086 tölvupóstur hmk@jofur.is

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Jöfur ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.


Kaupandi greiðir stimpilgjald af kaupsamningi, sem er 0,8% fyrir einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila af fasteignamati eða samkvæmt annarri upphæð sem sýslumaður ákveður hverju sinni. Greiði kaupandi hluta kaupverðs með láni, þá greiðir hann lánveitanda lántökugjald og skjalagerðarkostnað. Kaupandi greiðir allan kostnað við yfirtöku áhvílandi lána. Kaupandi greiðir þinglýsingu kaupsamnings, afsals og veðskjala og er kostnaður við það kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Kaupandi greiðir umsýslugjald til Jöfurs ehf. að fjárhæð kr. 82.460,- 


Hafðu beint samband við starfsmenn Jöfurs:
Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali - 863-5868
Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali - 897-7086
Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali - 824-6703
Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali - 861-0511

Kynntu þér fleiri eignir og þjónustu Jöfurs atvinnuhúsnæðis á www.jofur.is

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Jöfur atvinnuhúsnæði
64.900.000 kr.428 þ./m²
+60,2% á 2 árum
30. desember 2024Fyrsta sala
40.500.000 kr.440 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Tunguhella 10V

221 Hafnarfjörður
TegundAtvinnuhúsnæðiStærð151,6 m²Baðherb.2
64.900.000 kr.428 þ./m²
Byggingarár2025InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF2532875Fasteignamat34.300.000 kr.Brunabótamat35.750.000 kr.
Skráð hjá
HeimilisfangSuðurlandsbraut 4a, 108 ReykjavíkSími534-1020

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 14 myndir

Upp ↑