fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Torrevieja
1 af 22

Um eignina

Spánarheimili kynnir: Glæsilegt nútímalegt tveggja hæða einbýlishús sem er staðsett á 360 m² lóð með 230 m² byggingarflöt. Húsið býður upp á þrjú rúmgóð svefnherbergi og þrjú fullbúin baðherbergi. Eldhús er opið við stofu/borðstofu þaðan sem útgengt er út á glæsilega verönd með einkasundlaug. Eignin státar af einkasundlaug með hitunarvél, stórum sólpalli á þaki með fyrirfram uppsetningu fyrir heitan pott og fallegum garði. Húsið inniheldur einnig snjallheimakerfi, fullbúið eldhús með hágæða tækjum, innbyggða fataskápa og tvær loftkælingareiningar, sem tryggja hámarks þægindi og virkni allt árið um kring. Eignin er tilbúin til afhendingar. Nánar um svæðið: Torrevieja er borg í austurhluta Alicante-héraðs Spánar, á Costa Blanca. Borgin er þekkt fyrir milt Miðjarðarhafsloftslag sitt og strandlengju. Göngugötur liggja meðfram fögrum sandströndum. Torrevieja er borg þar sem njóta má lífsins utandyra, borg sem brosir ætíð mót hafinu, borg sem er rík af hefðum og venjum en um leið nútímaleg og opin öllu sem vilja njóta lífstílsins við Miðjarðarhafið. Inni í landinu er Lagunas de la Mata-Torrevieja náttúrugarðurinn með skemmtilegum gönguleiðum og tveimur saltvötnum, annað bleikt og hitt grænt. Staðsetning Torrevieja á Íberíuskaganum þýðir að þar er meðalhiti um 18°C og meira en 300 sólskinsdagar á ári hverju. Eigendur fasteigna í Torrevieja njóta þróaðra innviða; menntastofnana, heilsugæslu, vatnagarða og verslana. Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is --- Eignarnúmer: 2433 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/170513/modern-two-story-villa-in-torrevieja/

Spánarheimili kynnir - Torrevieja

1053 Spánn - Costa Blanca
109.900.000 kr.478 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 3 bað
TegundEinbýlishúsStærð230 m²Herbergi6FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 22 myndir

Upp ↑