fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Los Altos/Los Balcones
1 af 50

Um eignina

Spánarheimili kynnir: Glæsilega lúxusvillu. Húsið er á þremur hæðum og stendur á  806 m² lóð. Nútímalegur arkitektúr, hágæða efni og glæsilegar innréttingar. Á aðalhæðinni er að finna bjarta stofu með arni, borðstofu með stórum gluggum og rúmgóðu eldhúsi með hágæða tækjum. Útgengt er út á stóra verönd með infinity sundlaug með fossi. Efri hæðin inniheldur þrjú svefnherbergi með náttúrulegu ljósi, tvö glæsileg baðherbergi (þar af eitt en suite) og hjónaherbergi með 23 m² einkaverönd, fullkomið til að njóta útsýnis og sólsetra. Tveir inngangar eru í húsð þ.e. aðalinngangurinn sem leiðir að stórri verönd og svo annar inngangur á jarðhæð með bílastæði fyrir fimm bíla og bílskúr fyrir einn bí. Einnig er pláss fyrir húsbíla eða stór ökutæki. Í kjallaranum er að finna einkagym, fullbúið baðherbergi, þvottahús og tæknirými.Á meðal sérstakra eiginleika eru gólfhiti, sólarsellur, öryggismyndavélar, styrk uppbygging og lúxus efni í öllum rýmum. Villan er fullbúin og tilbúin til afhendingar. Sjón er sögu ríkari. Um svæðið: Á Costa Blanca svæðinu sameinar Los Altos – Los Balcones friðsæld og aðgengi. Í aðeins nokkurra mínútna fjarlægð finnur þú matvöruverslanir, apótek, skóla, heilsugæslustöðvar og almenningssamgöngur, auk virta Torrevieja háskólasjúkrahússins. Njóttu fallegu strandanna í Orihuela Costa og Torrevieja, aðeins í 10 mínútna akstursfjarlægð, eða spilaðu golf á nálægum völlum eins og Villamartín, Las Ramblas eða Campoamor. Einnig er stutt í La Zenia Boulevard verslunarmiðstöðina, eina þá stærstu á svæðinu, og góðar samgöngur eru við flugvellina í Alicante og Murcia – báðir innan við klukkustund í burtu. Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is --- Eignarnúmer: 2436 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/170516/luxury-villa-with-2-floors-basement-in-los-balcones-torrevieja/

Spánarheimili kynnir - Los Altos/Los Balcones

1053 Spánn - Costa Blanca
183.100.000 kr.
Einbýlishús3 svefn · 4 bað
TegundEinbýlishúsStærð0 m²Herbergi7BílskúrFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 50 myndir

Upp ↑