fasteignasölur.is
Norðurleið 13
1 af 7

Um eignina

Landmark fasteignamiðlun ehf  og Davíð Matthíasson lgf kynna í einkasölu Norðurleið 13, 801 Selfoss,
eingarlóð , fastanúmer 234-0922 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Búgarðalóð, Tjarnabyggð, Árborg
Til sölu er 10.392 fm eignarlóð í Tjarnabyggð, Árborg, sem er kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja njóta kosta sveitalífsins en um leið fá alla þægindi þéttbýlis. Lóðin er vel staðsett milli Selfoss og Eyrarbakka, einungis um 4 km fjarlægð frá Selfossi og um 40 mínútna akstur frá Reykjavík.
Eiginleikar lóðar:
Stærð: 10.392 fm
Heimilt byggingarmagn: Allt að 1500 fm
Íbúðarhúsnæði: Allt að 1000 fm
Útihúsa: Samtals má byggingarmagn ekki fara yfir 1500 fm
Stærð og skipulag lóðar gerir hana kjöraða fyrir bæði íbúðarhúsnæði og atvinnustarfsemi tengda landbúnaði

Helstu kostir að búa í Tjarnabyggð
Frábær staðsetning , stutt í alla þjónustu Selfoss
Gott aðgengi að stofnbrautum og stutt akstursfjarlægð til Reykjavíkur
Sveitakyrrð og friðsæld ásamt því að njóta þjónustu Árborgar og viðkomandi veitna, þar á meðal:
Skólaakstur, snjómokstur og sorphirðu, tæming rotþróa.
Heitt og kalt vatn.
Samfélagsleg uppbygging.
Svæðinu er skipt í smærri klasa með 5-6 lóðum
Reið- og göngustígar milli klasa, hentar vel fyrir þá sem hafa áhuga á hestamennsku, garðyrkju eða annarri landbúnaðarstarfsemi.

Góð fjárfesting
Stærð lóðar og heimildir til byggingar gefa möguleika á sveigjanlegri nýtingu
Tjarnabyggð í Árborg er einstakt svæði sem sameinar kostina við sveitarlíf og nálægð við þjónustu. Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja njóta rólegra og fallegra umhverfis en samt hafa alla nauðsynlega innviði innan seilingar.

Sjá deiliskipulag búgarðabyggðar:
http://skipulagsaaetlanir.skipulagsstofnun.is/skipulagvefur/DisplayDoc.aspx?itemid=01634425443905575000

Fyrir frekari upplýsingar og skoðun, hafðu samband!**
Davíð Matthíasson Löggiltur fasteignasali.
GSM- 8981713, tölvupóstur david@landmark.is.
 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Norðurleið 13

801 Selfoss (dreifbýli)
10.900.000 kr.
Jörð/Lóð
TegundJörð/LóðStærð0 m²FasteignanúmerF23409226Fasteignamat14.050.000 kr.
Skráð hjá
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
HeimilisfangHlíðasmári 2, 6. hæð, 201 KópavogurSími512-4900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 7 myndir

Upp ↑