fasteignasölur.is
Reykjastræti 7 (214)
1 af 126

Um eignina

**EIGANDI SKOÐAR SKIPTI BÆÐI Á MINNI OG STÆRRI EIGN**

Móeiður Svala löggiltur fasteignasali og Miklaborg kynna í einkasölu: Reykjastræti 7 íbúð 214 - Stórglæsileg og afar vönduð 101 fm 2ja herbergja horníbúð á 2. hæð við Austurhöfn í hjarta miðborgarinnar. Íbúðin nýtur fallegs útsýnis til miðbæjarins og að Hörpu. Sérmerkt bílastæði í læstri bílgeymslu og 11,9 fm sérgeymsla fylgja eigninni.

Íbúðin er björt, með aukna lofthæð, stórum gólfsíðum gluggum í tvær áttir og mikilli innbyggðri lýsingu. Vandað eikarparket á gólfum og allar innréttingar eru sérsmíðaðar úr amerískri hnotu frá ítalska framleiðandanum Gili Creations.


Bókaðu skoðun: Móeiður Svala lögg. fasteignasali s: 899-8278 eða moa@miklaborg.is



Nánari lýsing:

Forstofa: Flísalögð og björt með gólfsíðum glugga til norðurs og vönduðum fataskápum úr hnotu.

Stofa: Parketlögð, björt og rúmgóð með gólfsíðum gluggum í tvær áttir og útgengi á skjólsælar austursvalir með viðarklæddu gólfi þar sem sólin skín á milli bygginga eftir 17 á sumrin.

Eldhús: Rúmgott og opið við stofu, parketlagt, með sérsmíðaðri hnotuinnréttingu, marmara á borðum og vegg á milli skápa. Innbyggður ísskápur af stærri týpunni með frysti, innbyggð uppþvottavél og innbyggður vaskur í marmaraborði. Stór eyja með marmara á borðum og hliðum, innfelldu vönduðu helluborði með innbyggðum háfi, áföst borðaðstaða og innbyggðir rafmagnstenglar. Stór tækjaskápur sér á vegg með marmaraklæðningu á borði og vegg.

Baðherbergi: Stórt með flísalögðu gólfi og flísalögðum og marmaraklæddum veggjum. Stór walk-in sturta með sturtugleri, innbyggðum vönduðum tækjum í vegg, bæði handsturtu og innbyggðum sturtuhaus í lofti. Baðkar með flísa- og marmaralögn í kring, vönduð innrétting úr hnotu með marmara á borðum og innbyggðum vaski, handklæðaofn og stórir speglaskápar. Þvottaaðstaða með stæðum fyrir þvottavél og þurrkara í góðri innréttingu.

Svefnherbergi: Stórt og rúmgott, parketlagt með fallegri lýsingu.

Fataherbergi: Inn af svefnherbergi um rennihurð, parketlagt með sérsmíðuðum hnotuinnréttingum og stórum spegli á vegg

Stofan og eldhúsið sameinast í opið rými sem gerir íbúðina einstaklega bjarta og rúmgóða.


Snjallt heimiliskerfi gerir kleift að stýra lýsingu, hitastigi og gluggatjöldum með einum hnappi.


Sérmerkt bílastæði í bílakjallara er merkt 10-B-80 (214).
Sérgeymsla, í kjallara er 11,9 fermetrar að stærð. 


Austurhöfn er ein metnaðarfyllsta íbúðabygging landsins, þar sem áhersla er lögð á gæði, hönnun og frágang í hæsta flokkieinstakt tækifæri fyrir þá sem vilja sameina lúxus, staðsetningu og þægindi í hjarta Reykjavíkur með einstakan aðgang að frábærum veitingastöðum, verslunum og menningarlífi borgarinnar.


Bókaðu skoðun: Móeiður Svala lögg. fasteignasali s: 899-8278 eða moa@miklaborg.is

Reykjastræti 7 (214)

101 Reykjavík
127.900.000 kr.1.266 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2019TegundFjölbýlishúsStærð101 m²Herbergi2InngangurSérinngangurLyftaFasteignanúmerF2369180Fasteignamat132.700.000 kr.Brunabótamat74.940.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 126 myndir

Upp ↑