fasteignasölur.is
Hlíðartröð 1 Dalvík
1 af 21

Um eignina

EIGNAVER 460-6060
Hlíðartröð 1 (áður Hamarkot 2), Dalvíkurbyggð.

Fallegt 77,5 fm. sumarhús ásamt 31,5 fm. geymsluhúsi, samtals 109 fm., á u.þ.b. eins hektara leigulóð sem stendur rétt áður en keyrt er inn til Dalvíkur.
Húsið er byggt 1992 og geymsluhúsið 2005. Það stendur á skjólgóðum stað og er í u.þ.b. 30 mínútna akstursfjarlægt frá Akureyri.
Eignin skiptist í; forstofu eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, svefnloft og rúmgóða stofu, ásamt rúmgóðu geymsluhúsi sem stendur aftan við húsið.
Svefnloft er yfir hluta hússins.

 
Lýsing eignar:
Anddyri, spónaparket og fatahengi.
Eldhús, viðarinnrétting, tvær eldunarhellur og aðstaða fyrir þvottavél. Gott vinnupláss.
Baðherbergi er með sturtu, flísar á gólfi og plötur á veggjum. Gluggi með opnanlegu fagi.
Svefnherbergin eru tvö í húsinu. Spónaparket á gólfum og fataskápur í öðru þeirra.
Stofa er í  opnu rými þar sem hátt er til lofts. Spónaparket á gólfi. Falleg kamína í stofu. Gengið út á stóra og skjólgóða timburverönd. 
Svefnloft, gengið upp stiga í stofu. Parket á gólfi.
Útigeymsla, 31,5 fm. einangruð og með rafmagni.

Annað:
- Húsið er með hitaveitu
- Þak endurnýjað að mestu fyrir fáum árum.
- Klæðning á eldra húsi ( er eldhús í dag) endurnýjuð fyrir fáum árum.
- Gluggar og gler hafa verið endurnýjaðir.
- Góð timburverönd sunnan við hús.
- Stór og góð leigulóð.
- Sannkallaður sælurætur.
- Mikil veðursæld er á þessu svæði og er það mikil útivistarparadís.
- Hægt er að stunda fjallaskíðamennsku á heimsmælikvarða í næsta nágrenni.

Eignin er í einkasölu hjá Eignaveri fasteignasölu.

Nánari upplýsingar;
Arnar  s. 898-7011    arnar@eignaver.is
Begga s. 845-0671   begga@eignaver.is
Tryggvi s. 862-7919  tryggvi@eignaver.is

 

Hlíðartröð 1 Dalvík

621 Dalvík (dreifbýli)
41.900.000 kr.384 þ./m²
Sumarhús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1992TegundSumarhúsStærð109 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF21556792Fasteignamat34.700.000 kr.Brunabótamat48.800.000 kr.
Skráð hjá
Eignaver fasteignasala ehf.
HeimilisfangHafnarstræti 97 (Krónan), 600 AkureyriSími460-6060

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 21 myndir

Upp ↑