fasteignasölur.is
Fálkahlíð 5
1 af 15

Um eignina

Betri Stofan fasteignasala Borgartún 30 og Atli S. Sigvarðsson fasteignasali kynna nýtt í einkasölu: Nýleg, vel skipulögð og sérstaklega rúmgóð 2ja herbergja íbúð á 3. hæð við Fálkahlíð 5 Reykjavík.  Eignin telur: Anddyri, opið rúmgott alrými (stofa og eldhús), fínt svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús innaf baðherbergi, fínar svalir til vesturs, stóra geymslu í sameign ásamt bílastæði í bílageymslu. 

Nánari lýsing: 
Anddyri: með fataskáp, parket á gólfi.
Stofa: gott rými með stórum gluggum, parketi á gólfi og útgengi á fínar svalir til vesturs, með útsýni að Reykjavíkurflugvelli. 
Eldhús: opið við stofu, þar er fín hvít innrétting, innbyggð uppþvottavél, ísskápur og tveir ofnar.
Svefnherbergi: rúmgott herbergi með parketi á gólfi og fataskáp. 
Baðherbergi: flísalagt og fallegt með hvítri innréttingu, ljósaspegli, handklæðaofni og einhalla sturtu með gleri.
Þvottahús: flott aðstaða í sér rými innaf baðherberginu.
Geymsla: stór og góð geymsla í sameign, skráð 19,5 fm, ásamt sameiginlegum hjóla og vagnageymslum.
Bílageymsla: gott stæði með rafhleðslu í upphitaðri og lokaðri bílageymslu, merkt 01B30. 
Húsið er byggt af Dalhús ehf. -  vandaður og reynslumikill verktaki. 

Þetta er virkilega falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð með stæði í bílageymslu, eignin er sem ný.
Allar nánari upplýsingar veitir Atli S. Sigvarðsson fasteignasali í síma 899-1178 eða atli@betristofan.is 


 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Fálkahlíð 5

102 Reykjavík
79.900.000 kr.904 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2022TegundFjölbýlishúsStærð88,4 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF25126737Fasteignamat84.050.000 kr.Brunabótamat61.560.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 15 myndir

Upp ↑