fasteignasölur.is
Perla Inv. - Glæsilegt einbýli með frábæru útsýni
1 af 85

Um eignina

PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.

Perla Investments kynnir:Glæsilegt einbýli með frábæru útsýni

Einstaklega glæsilegt einbýlishús með frábæru útsýni í Dehesa de Campoamor á Costa Blanca ströndinni.

Húsið sem er 189,3m2 er á tveimur hæðum með  3 svefnherbergjum og 4 baðherbergjum. eldhús, borðstofa og stofa í stóru og björtu alrými með góðri tengingu við glæsilegt útisvæðið, en þar er að finna stóra sundlaug og sér bílastæði innan lóðar. Eigninni fylgja einnig glæsilegar og stórar þaksvalir með stórfenglegu útsýni og kjallari, þar sem tilvalið væri að útbúa sem tómstundarherbergi, bíósal, íþróttaaðstöðu eða vínkjallara.

Hægt er að fá þetta hús með 4 svefnherbergjum.

Hér ertu nálægt allri þjónustu sem hugsast getur, stutt er í matvöruverslanir, apótek og veitingastaði í nærliggjandi þorpum, sem og þá ertu aðeins um 10 mínútur frá hinum fræga Las Colinas Golfvelli. Og fyrir strandunnendur þá ertu í einungis nokkurra mínúta fjarlægð frá kílómetra löngum breiðum fín sendnum ströndum.

Hafirðu áhuga á að spila golf, þá ertu komin á rétta staðinn, en innan við 8 km radíus er að finna fjóra 18 holu golfvelli, s.s. Villamartin golfvöllinn, Campoamor Real Golf Klúbbinn, Las Ramblas golfvöllinn og Las Colinas völlinn. 

Vertu velkomin að hafa samband til að fá frekari upplýsingar um þessa einstöku eign!

Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á  https://perlainvest.com/eign/6889/einstaklega-glaesilegt-einbylishus-med-frabaeru-utsyn/        

Ref: NB-98057

Fylgdu okkur á Facebook - www.facebook.com/Perlainvest 

Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com .  Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.

Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu.  Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á info@perlainvest.com 

Perla Inv. - Glæsilegt einbýli með frábæru útsýni

1053 Spánn - Costa Blanca
171.600.000 kr.906 þ./m²
Einbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2024TegundEinbýlishúsStærð189,3 m²Herbergi3FasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangC.C. Los Dolses nº 142, Villamartin, Orihuela Cost, 03189Sími893-3911

Allar 85 myndir

Upp ↑