fasteignasölur.is
Kirkjubraut 59
1 af 7

Um eignina

Fasteignasalan TORG & Helgi Jónsson Lgfs, 780-2700 kynna : 
Um er að ræða  vel staðsett 137,1fm 5 herbergja einbýlishús ásamt 19,3fm sólstofu og 42,7fm bílskúr, samtals : 199,1fm. Eignin skiptist í : forstofu, gang, eldhús, stofu, borðstofu, sólstofu, fjögur herbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is

NÁNARI LÝSING : 

Forstofa : með flísum á gólfi. Svefnherbergi innaf forstofu, ekki fullfrágengið. Gangur með flísum á gólfi. Stofa / Borðstofa mjög rúmgóðar með parketi á gólfi. 
Sólstofa 19,3fm innaf stofu. Sólstofan hefur verið endubyggð og steypt nýtt gólf. Sólstofan hefur verið opnuð inn í stofuna og hluti hennar notaður til að stækka eitt svefnherbergjana. Útgengt út á sólpall með skjólveggjum og þaðan út í bakgarð. Eldhús með endurnýjaðri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél, borðkrókur, flísar á gólfi. Hjónaherbergi með fataherbergi innaf, parket á gólfi. Svefnherbergi : þrjú með parketi á gólfi. Búið er að opna á milli tveggja herbergjana en auðvelt að loka aftur. Baðherbergi : með sturtu, innrétting við vask, upphengt salerni, flísar á gólfi. Þvotthús : rúmgott með lökkuðu gólfi, útgengt út á bílastæði. Bílskúr : er skráður 42,7fm og í honum er herbergi með sérinngangi sem gæti hentað vel til útleigu.
Annað : Aðkoma og innkeyrsla af húsinu er rúmgóð, hellulögð að hluta.
Endurnýjað að sögn eiganda : Búið er að skipta um glugga í húsinu að hluta og einnig búið að klæða húsið nánast allt húsið. Efni á staðnum til að klára það. Baðherbergið hefur verið endurnýjað að hluta. Nýtt járn er á þaki hússins. Sólstofan hefur verið endurbyggð. Endurnýjaður hitakútur. 
2025-2026 : Búið er að opna vegg milli garðskála og stofu. Einnig var eitt svefnherbergjana stækkað inn í garðskálann.  Skipt hefur verið um eldhúsinnréttingu og veggur opnaður á milli eldhús og stofurýmis. Einnig var geymsla og búr opnað til að búa til fjórða svefnherbergið, ekki fullklárað.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is


 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasalan TORG
49.900.000 kr.251 þ./m²
+18,8% á 2 árum
6. mars 2025Fyrsta sala
42.000.000 kr.211 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Kirkjubraut 59

780 Höfn (Hornafjörður)
49.900.000 kr.251 þ./m²
Einbýlishús4 svefn · 1 bað
Byggingarár1975TegundEinbýlishúsStærð199,1 m²Herbergi5InngangurMargir inngangarBílskúrFasteignanúmerF218102318Fasteignamat69.250.000 kr.Brunabótamat92.080.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan TORG
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 7 myndir

Upp ↑