fasteignasölur.is
Hagasel 2
1 af 96

Um eignina

Miklaborg kynnir: Snyrtilegt og töluvert endurnýjað endaraðhús á þremur pöllum með innbyggðum bílskúr samtals um 200 fm. Í húsinu eru 5 svefnherbergi, stór stofa, baðherbergi og snyrting, rúmgott eldhús, vinnuherbergi, þvottahús og geymsla. Fjölskylduvænt hús á rólegum stað í Seljahverfi!

Nánari lýsing:

Miðpallur - Inngangur í húsið og þar er forstofa með fataskáp, gott svefnherbergi og falleg gestasnyrting.

Efri hæð - Gengið upp 3 tröppur upp í stóra og rúmgóða stofu og borðstofu. Upptekin loft eru í stofunni sem er björt með gluggum á tvo vegu. Útgengi er út á suðvestur svalir frá stofu. Eldhús er inn af stofu er sérlega rúmgott og er nýlega endurnýjað. Mjög gott skápa- og skúffupláss en borðkrókur er innst í eldhúsinu. Tveir ofnar í innréttingu.

Neðri hæð - Stigi frá miðpalli. Rúmgott baðherbergi bæði með baðkari og sturtuklefa, gólf og veggir eru flísalagðir, gólfhiti og snyrtileg innrétting með vask. Fjögur svefnherbergi þar af hjónaherbergi með fataskápum en útgengi er frá hjónaherbergi út á afgirtan sólpall. Pallurinn snýr í suðvestur og er með hliði sem er aðgengilegt frá enda hússins. Á hæðinni er þvottahús með góðum innréttingum og vask í innréttingu og loftræstingu. Inn af þvottahúsi er rúmgóð geymsla. Lítið vinnuherbergi gluggalaust er á milli þvottahúss og herbergis. Gólfefni hússins er að hluta til harðparket og að hluta flísar en gólfefnin eru frekar nýleg. Útihurð og svalahurðir eru nýlegar. Bílskúr er skráður 19,2 fm og er hann með rafdrifinni bílskúrshurð en auka geymslurými er á millilofti bílskúrsins. Snjóbræðsla er í aðkomu að húsi og bílskúr. Lóðin er frekar lítil en trjágróður er götumegin við húsið.


Ástandslýsingu seljanda er hægt að nálgast hjá fasteignasölunni en ekkert húsfélag er starfandi í lengjunni.


Eignin er skráð 161,4 fm samkvæmt HMS en búið er að stækka hana sem nemur innri hluta jarðhæðar þar sem eitt svefnherbergi er, vinnuherbergi, þvottahús og geymsla en um er að ræða stækkun upp á um 40 fm.


Hér er um að ræða fjölskylduvæna eign á rólegum stað í Seljahverfi, skóli og leikskóli í næsta nágrenni.


Nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Miklaborg
119.900.000 kr.600 þ./m²
+75,0% á 8 árum
29. janúar 2019Þinglýstur kaupsamningur
68.500.000 kr.424 þ./m²
+5,4% á 1 ári
9. nóvember 2017Þinglýstur kaupsamningur
65.000.000 kr.403 þ./m²
+66,7% á 4 árum
19. júní 2013Fyrsta sala
39.000.000 kr.242 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hagasel 2

109 Reykjavík
119.900.000 kr.600 þ./m²
Rað-/parhús5 svefn · 2 bað
Byggingarár1979TegundRað-/parhúsStærð200 m²Herbergi6InngangurSameiginlegurBílskúrFasteignanúmerF2054854Fasteignamat98.650.000 kr.Brunabótamat86.000.000 kr.
Skráð hjá
Svan Gunnar GuðlaugssonLöggiltur fasteignasali697-9300 · svan@miklaborg.is
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 96 myndir

Upp ↑