fasteignasölur.is
Brimnesvegur 24
1 af 15

Um eignina

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Brimnesvegur 24 - Snyrtilegt 3ja herbergja einbýlishús á hornlóð á Ólafsfirði - stærð 81,7 m²


Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi, þvottahús og geymslu.

Forstofa er með flísum á gólfi. Úr forstofu er gengið inn á hol með dökku plastparketi á gólfi og innbyggðum skáp. 
Eldhús, ljós máluð viðar innrétting með nýlegri bekkplötu og dökkt plastparket á gólfi. Ágætur borðkrókur með glugga með útsýni út á fjörðinn. 
Stofa er með dökku plastparketi á gólf og gluggum til tveggja átta.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, hvítri innréttingu, wc, sturtu og opnanlegum glugga. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði með dökku plastparketi á gólfi og í hjónaherberginu er stór spónlagður fataskápur. 
Þvottahús er með lökkuðu gólfi, ljósri innréttingu og hurð út á baklóð. Lúga er í loftinu upp á loft. 
Geymsla er innaf þvottahúsinu með flísum á gólfi, hillum og opnanlegum glugga. 

Á baklóðinni er góður geymsluskúr sem búið er að klæða að innan og setja harðparket á gólfið.

Annað
- Fyrir framan er lítil timburverönd og timbur stétt.
- Búið er að endurnýja mikið af gleri.
- Frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar
- Húsið er nýlega málað að utan. 
- Skemmtilegt lítið einbýlishús sem hefur verið vel viðhaldið.
- Á árunum 2024-25 voru allir gluggar og útidyrahurðar endurnýjað.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Hvammur Fasteignasala
29.900.000 kr.366 þ./m²
+49,5% á 4 árum
24. nóvember 2022Fyrsta sala
20.000.000 kr.245 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Brimnesvegur 24

625 Ólafsfjörður
29.900.000 kr.366 þ./m²
Einbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1953TegundEinbýlishúsStærð81,7 m²Herbergi3InngangurTveir inngangarFasteignanúmerF21540144Fasteignamat23.150.000 kr.Brunabótamat42.850.000 kr.
Skráð hjá
Hvammur Fasteignasala
HeimilisfangHafnarstræti 19, 600 AkureyriSími466-1600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 15 myndir

Upp ↑