fasteignasölur.is
Skarðshlíð 28 - 101
1 af 22

Um eignina

    

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Skarðshlíð 28 - 101

Virkilega vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á neðstu hæð (jarðhæð) í fjölbýlishúsi í Glerárhverfi, miðsvæðis á Akureyri. Eignin er skráð samkv. HMS 66,2 fm., auk þess er geymsla í sameign. 

**Laus við kaupsamnning**
**Frábær fyrstu kaup**

Eignin skiptist í anddyri, gang, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi og baðherbergi. 


Anddyri er með parket á gólfi sem og á gangi þar sem er einnig fataskápar.  
Eldhús er í opnu rými með stofu og er parket á gólfi. Eldhúsinnrétting er nýlega endurnýjuð og úr stofu sem er rúmgóð er gengið út á steypta verönd sem snýr til suðurs. 
Svefnherbergi eru tvö, bæði með parket á gólfi og nýlegir skápar í hjónaherbergi.
Baðherbergi er upprunalegt, með flísar bæði á gólfi og veggjum, baðkar með sturtutækjum og tengi fyrir þvottavél. 

Annað: 
-Húsið málað að utan 2025
-Slökkvarar og innstungur endurnýjaðar 
-Innihurðar endurnýjaðar
-Parket endurnýjað
-Skápur í hjónaherbergi endurnýjaður
-Flott staðsetning, miðsvæðis á Akureyri og stutt i helstu þjónustu ásamt leik- og grunnskóla og íþróttasvæði Þórs. 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
greta@byggd.is
bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 


 

Skarðshlíð 28 - 101

603 Akureyri (utan Glerár)
46.800.000 kr.707 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1972TegundFjölbýlishúsStærð66,2 m²Herbergi3InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF21503331Fasteignamat37.100.000 kr.Brunabótamat36.950.000 kr.
Skráð hjá
Byggð
HeimilisfangSkipagötu 16, 600 AkureyriSími464-9955

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 22 myndir

Upp ↑