fasteignasölur.is
Fitjabakki 1
1 af 16

Um eignina

PRODOMO Fasteignasala kynnir atvinnuhúsnæði að Fitjabakka 1d í Njarðvík. 

Í eigninni er stór og rúmgóður salur með góðri lofthæð, stórri innkeyrsluhurð og inngönguhurðum að framan- og aftanverðu. Skrifstofuaðstaða, tvennar salernisaðstöður, eldhúskrókur og setustofa ásamt millilofti sem er 90 fm. Salurinn er mjög rúmgóður og í honum er mikil lofthæð. Malbikað plan að framan og góð aðkoma að eigninni.

Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða lilja@prodomo.is og Hákon Ó. Hákonarsson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða hakon@prodomo.is

​​​​​​Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.


 

Fitjabakki 1

260 Njarðvík
58.900.000 kr.353 þ./m²
Atvinnuhúsnæði1 bað
Byggingarár1988TegundAtvinnuhúsnæðiStærð166,9 m²InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20932232Fasteignamat35.900.000 kr.Brunabótamat48.450.000 kr.
Skráð hjá
PRODOMO ehf
HeimilisfangHafnargötu 15, 230 ReykjanesbæSími420-4030

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 16 myndir

Upp ↑