fasteignasölur.is
Fossvogsvegur 18
1 af 19

Um eignina

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA, SÍMI 562-4250, ER MEÐ TIL SÖLU GLÆSILEGA 5 HERB. ÞAKÍBÚР MEÐ ÞAKSVÖLUM Í NÝJU LYFTUHÚSI VIРFOSSVOGSVEG 8-36 Í REYKJAVÍK.
Glæsileg og vel skipulögð 5 herbergja penthouse sérhæð, merkt 0203 (Fossvogsvegur 18) í fallegu nýju álklæddu lyftuhúsi.
Birt stærð íbúðar er skráð 241,8 fm. að stærð.
Sérinngangur
Sérlyfta fylgir þessari íbúð sem gengur frá neðstu hæð beint upp í íbúðina.
Stórar þaksvalir.
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgja þar sem er innangegnt beint inn í íbúð frá bílageymslu.

Fossvogsvegur 8-34 er nýtt 3ja hæða tengihús sem er í Fossvognum nánar tiltekið fyrir neðan Borgarspítalann á einstaklega veðursælum og fallegum stað.  
Húsið er 3ja hæða.  Fjórar sérhæðir (penthouse) eru á efstu hæðinni með stórum þaksvölum og sérlyftum.  Ellefu tveggja hæða íbúðir (hálfgerð raðhús) eru á miðhæð og jarðhæð.  Bílageymsla er einnig á jarðhæð en innangegnt er í íbúðirnar frá bílageymslu (alla nema eina íbúð).  Samtals eru fimmtán íbúðir í húsinu.

Smelltu hér til að skoða söluvef fyrir Fossvogsveg  https://vefir.onno.is/bygg/fossvogsvegur/?sref=fjarfesting

Pantið skoðun hjá sölumönnum Fjárfestingar Fasteignasölu:
Óskar sími 822-8750 oskar@fjarfesting.is
Guðjón sími 846-1511 gudjon@fjarfsting.is
Hildur sími 661-0804 hildur@fjarfesting.is
Smári sími 864-1362 smari@fjarfesting.is
Edda sími 845-0425 edda@fjarfesting.is
Guðmundur sími 865-3022 gudmundur@fjarfesting.is
Jónas sími 842-1520 jonas@fjarfesting.is

Nánari lýsing:
Komið er inn á miðhæð inn í sérstigagang, þar sem er sérlyfta.
Efri hæð:  
Komið er inn í hol með góðum fataskáp.
Eldhús með glæsilegri innréttingu frá Brúnás, borðplötum úr Virgo Quarts-steini og vönduðum eldhústækjum frá Ormsson. 
Stofur með útgengi út á stórar þaksvalir.
Hjónasvíta með fataherbergi og sérbaðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórri sturtu með glerþili, innbyggðum vönduðum blöndunartækjum frá Tengi, og fallegri innréttingu frá Brúnás.
Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu.
Tvö góð svefnherbergi með fataskáp.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, stórri sturtu með glerþili, innbyggðum vönduðum blöndunartækjum frá Tengi, og fallegri innréttingu frá Brúnás.
Neðsta hæð:
Stigagangurinn (og lyftan) gengur frá íbúðinni og alveg niður á neðstu hæð þar sem er bílageymsla. 
Sérgeymsla er við hlið stigagangs.
Stæði í bílageymslunni fylgir

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í kjallara.

Frekari upplýsingar má finna í skilalýsingu Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hf., sem má nálgast hjá fasteignasala.

Áætlað er að íbúðirnar verði afhentar í febrúar 2026.

Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati, 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga.
2. Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.
3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar.
4. Umsýsluþóknun skv. gjaldskrá fasteignasölu.

Fossvogsvegur 18

108 Reykjavík
335.000.000 kr.1.385 þ./m²
Fjölbýlishús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2025TegundFjölbýlishúsStærð241,8 m²Herbergi5InngangurSérinngangurFasteignanúmerF253495124Fasteignamat17.650.000 kr.
Skráð hjá
Fjárfesting
HeimilisfangBorgartúni 31, 105 ReykjavíkSími562-4250

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 19 myndir

Upp ↑