fasteignasölur.is
Spánarheimili kynnir - Playa flamenca
1 af 28

Um eignina

Spánarheimili kynnir: Falleg íbúð í Playa Flamenca wem er staðsett í hinu glæsilega Amanecer de Luxe íbúðahverfi. Íbúðin er á annarri hæð og býður upp á fallegt útsýni yfir hafið og græn svæði, með útsýni yfir sameiginlegu sundlaugina. Íbúðin er 81 m² að stærð og skiptist í tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi, þar af eitt með sérbaði. Eldhús í amerískum stíl, sem er opið við rúmgóða og bjarta stofu og myndar nútímalegt og hagnýtt rými. Úr stofunni og aðalsvefnherberginu er gengið út á stóra verönd, fullkomna til að njóta hins frábæra miðjarðarhafsloftslags allt árið um kring. Eigninni fylgir bílastæði í bílakjallara og geymsla, sem veitir aukin þægindi og geymslupláss. Íbúðahverfið býður upp á glæsileg sameignarsvæði, þar á meðal sundlaug, grillaðstöðu, líkamsræktarsal og rúmgóð græn svæði, sem eru hönnuð til að auka lífsgæði og vellíðan íbúa. Nánar um svæðið: Orihuela Costa er breið strandlengja á Costa Blanca suður með ótrúlegu útsýni, notalegum víkum, ströndum með hvítum sandi og fögrum Miðjarðarhafsskógi. Strandlengjan er 16 kílómetra löng og er í 20 kílómetra fjarlægð frá borginni. Á síðustu árum hefur verið mikil uppbygging í ferðaþjónustu á svæðinu. Mörg falleg hverfi eru á svæði Orihuela Costa auk glæsilegra golfvalla svo sem Villamartin, Las Ramblas, Campoamor og Las Colinas. Nokkrar verslunarmiðstöðvar eru á svæðinu, þar á meðal ein sú stærsta á Spáni. Þar má einnig finna strendur með bláa fánanum, sem þýðir að þær uppfylli hæstu gæðakröfur sem gerðar eru um strendur Evrópu. Má í því sambandi nefna Punta Prima, Playa de la mosca, Calas de Playa Flamenca, La Zenia, Cabo Roig og Campoamor. Í stuttu máli, fullkominn staður fyrir þá sem velta fyrir sér kaupum á eign við ströndina. Framboðið er mikið og verðið afar samkeppnishæft. Orihuela Costa skiptist upp í nokkrar íbúðabyggðir, hvort sem er nær eða fjær ströndu eða í grennd við golfvöll – allir ættu að geta fundið sitthvað við sitt hæfi. Allar nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu Spánarheimila, í síma 5585858 og info@spanarheimili.is --- Eignarnúmer: 2444 Slóð: https://spanarheimili.is/en/property/170526/second-floor-apartment-with-sea-views-in-playa-flamenca/

Spánarheimili kynnir - Playa flamenca

1053 Spánn - Costa Blanca
55.400.000 kr.684 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
TegundFjölbýlishúsStærð81 m²Herbergi4BílskúrLyftaFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangFjarðargata 13-15, 220 HafnarfjörðurSími558-5858

Allar 28 myndir

Upp ↑