fasteignasölur.is
Vorbraut (þakíbúð) 9
Nýtt
1 af 32

Um eignina

Miklaborg fasteignasala kynnir:

Glæsilegar nýjar 2ja–4ra herbergja íbúðir á eftirsóttum útsýnisstað á Hnoðraholtinu í nýju og spennandi hverfi í Garðabæ. Staðsetningin er afar góð þar sem stutt er í helstu stofnæðar, fjölbreytta þjónustu og útivistarsvæði.

Um er að ræða fallegt 12 íbúða lyftuhús á fjórum hæðum með bílakjallara. Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna, nema í votrýmum þar sem gólfefni fylgja. Í öllum íbúðum er gólfhiti og gólfsíðir gluggar.

***Sjá nánar hér á heimasíðu verkefnisins***
Bókið einkaskoðun hjá Sæþóri í síma 855-5550 eða saethor@miklaborg.is


Bílastæði eru á sameiginlegri lóð og fylgja flestum íbúðum sérmerkt stæði í bílakjallara.

Húsið stendur á góðum útsýnisstað og njóta margar íbúðir glæsilegs útsýnis.

Allar íbúðir eru útbúnar sjálfstæðu loftræstikerfi sem tryggir stöðug loftskipti innan íbúðar.


Íbúð 301 er 3ja til 4ra herbergja þakíbúð með 2 stæðum í bílageymslu og tvennum svölum þar sem glæsilegt útsýni er til allra átta.

Allar nánari upplýsngar veita:

Sæþór Ólafsson, löggiltur fasteignasali í síma 855-5550 eða saethor@miklaborg.is

Bára Gunnlaugsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 899-8809 eða bara@miklaborg.is

Ingimundur Ingimundarson, löggiltur fasteignasali í síma 867-4750 eða ingimundur@miklaborg.is

Ólafur Finnbogason, löggiltur fasteignasali í síma 822-2307 eða olafur@miklaborg.is


Birt stærð íbúðarinnar eru 179.5 fm, þar af 9.7 fm geymsla.


Eignin skipstist í hjónasvítu, herbergi, 2 baðherbergi með sturtu, eldhús með eyju í stóru alrými, tvennar stofur og sér þvottahús. 2 stæði í lokaðri bílageymslu og tvennar þaksvalir með stórbrotnu útsýni til allra átta.


Hvort sem þú ert að kaupa þína fyrstu eign, ert að stækka eða minnka við þig, eða ert að leita að nútímalegu og vönduðu heimili, þá er hér um að ræða kost sem vert er að skoða.


Verktaki er GG verk, sem stofnað var árið 2006 og er rekið við góðan orðstýr. Fyrirtækið hefur byggt yfir 1500 íbúðir og atvinnurými og leggur ríka áherslu á vönduð vinnubrögð og framúrskarandi fagmennsku. GG verk er ISO vottað fyrirtæki

Afhending er áætluð í september 2026.

Vorbraut (þakíbúð) 9

210 Garðabær
TegundFjölbýlishúsStærð179,5 m²Herbergi4Svefnherb.2Baðherb.2
214.900.000 kr.1.197 þ./m²
Byggingarár2026InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2542442Fasteignamat135.150.000 kr.Brunabótamat150.150.000 kr.
Skráð hjá
Sæþór ÓlafssonLöggiltur fasteignasali855-5550 · saethor@miklaborg.is
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑