1 af 3
Um eignina
Jöfur atvinnuhúsnæði s. 534-1020 kynnir:
Jöfur atvinnuhúsnæði kynnir til leigu Fossaleyni 21 í Reykjavík, öflugt og afar vel skipulagt atvinnuhúsnæði á eftirsóttum stað í Grafarvogi.Um er að ræða samtals 5.476 m² af lager-, skrifstofu- og þjónusturými, með góðri aðkomu fyrir vöruflutninga og stutt í stofnbrautir.
Húsnæðið hentar sérstaklega vel fyrir heildverslun, innflutning, dreifingu, framleiðslu eða aðra starfsemi þar sem þörf er á góðri lageraðstöðu, skilvirku vöruflæði og vönduðu skrifstofurými.
Nánari lýsing:
Samtals 5.476 m² af lager-, skrifstofu- og þjónusturými.
6 gámahleðsludyr auk nokkurra innkeyrslu- og vörudyra sem skapa fyrsta flokks aðstöðu fyrir vörumóttöku og afgreiðslu.
Tvö vöruhús með 10 - 12 metra lofthæð.
Skrifstofurými eru á fleiri en einni hæð með fundarherbergjum, kaffiaðstöðu, mötuneyti og góðri starfsmannaaðstöðu.
Stórt athafnasvæði á lóð með góðu aðgengi fyrir flutningabíla og fjöldi bílastæða.
Í húsnæðinu er rými sem áður var nýtt sem frystigeymsla. Með endurnýjun kæli- og frystibúnaðar gæti það nýst á ný sem frysti- eða kæligeymsla, eftir þörfum nýs leigjanda.
Húsnæðið býður upp á sveigjanlegt skipulag sem hentar fjölbreyttri atvinnustarfsemi.
Nánar um stærðir:
Húsnæðið skiptist í tvær einingar sem tengdar eru saman með millibyggingu. Annar hlutinn er um 1.200 m² lager og um 460 m² af skrifstofum á tveimur hæðum. Hin byggingin er um 900 m² lager, um 300 m² kæli-/frystirými og um 500 m² hleðslusvæði milli gámadokka og lagers. Á 2. og 3. hæð nýrri byggingarinnar eru rúmgóðar skrifstofur, um 580 m² á 2. hæð og um 560 m² á 3. hæð. Tengibyggingin tengir húsin saman er um 300 m² geymslu- og stoðrými. Lyfta er í húsinu.
Fossaleynir 21 er sérhannað lager- og þjónstuhús, vel staðsett á vaxandi athafnasvæði Reykjavíkur, með góðum aðkomuleiðum.
Nánari upplýsingar veita Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali, 861 0511, magnus@jofur.is eða Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali, 824-6703, olafur@jofur.is
Hafðu beint samband við starfsmenn Jöfurs:
Bergsveinn Ólafsson löggiltur fasteignasali - 863-5868
Helgi Már Karlsson löggiltur fasteignasali - 897-7086
Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali - 824-6703
Magnús Kristinsson löggiltur fasteignasali - 861-0511
Kynntu þér fleiri eignir og þjónustu Jöfurs atvinnuhúsnæðis á www.jofur.is
Fossaleynir 21
112 Reykjavík
Tilboð
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár1999TegundAtvinnuhúsnæðiStærð5476 m²Herbergi10FasteignanúmerF22434751Fasteignamat1.398.450.000 kr.Brunabótamat1.890.650.000 kr.
Staðsetning
Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál
Allar 3 myndir
Upp ↑

