fasteignasölur.is
Dugguvogur 15
1 af 47

Um eignina

Miklaborg kynnir: Vel skipulögð og björt 165,1 fm þriggja til fjögurra herbergja íbúð á tveimur hæðum ásamt stæði í lokaðri bílageymslu í nýlegu og vönduðu lyftuhúsi í Vogabyggð í Reykjavík. Íbúðin er með sérsmíðuðum ítölskum innréttingum frá Gili Creation. Kvartssteinn er á borðum, gólfsíðir gluggar, gólfhiti, vandað vínilparket á gólfum og ítalskar flísar á votrýmum.

Tvennar svalir, þar af stórar þaksvalir til vesturs með heitum potti.


Allar nánari upplýsingar veitir Kjartan Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is

NÁNARI LÝSING: 
Neðri hæð: Komið er inn í andyri með fatskápum. Á neðri hæð er svefnherbergi með fataskápum. Baðherbergi er með „walk-in“ sturtu og fallegri innréttingu. Þvottahús með innréttingu og skolvaski. Þvottavél og þurrkari í vinnuhæð.

Eldhús er með vönduðum innréttingum og eldhúseyju sem hægt er að sitja við. Útgengt er á 5,2 fm svalir til vesturs. Á neðri hæðinni er björt stofa sem hægt er að breyta í svefnherbergi og rúmgóð borðstofa.

Á efri hæð er sjónvarpshol með útgengi út á þaksvalir, hjónasvíta, fataherbergi með skápum og baðherbergi með „walk-in“ sturtu og fallegri innréttingu og þaðan er útgengi á 33,4 fm þaksvalir til vesturs með heitum potti.

Sérmerkt bílastæði í lokuðu bílahúsi. Hleðslustöð fyrir rafbíla er í stæðinu.

Nánasta umhverfi: Stutt í verslun, þjónustu og almenna útivist. Góðar göngu- og hjólaleiðir eru að Elliðarárdal og meðfram sjó.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Miklaborg
145.000.000 kr.878 þ./m²
+16,1% á 4 árum
13. júlí 2022Fyrsta sala
124.900.000 kr.757 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Dugguvogur 15

104 Reykjavík · Vogar
TegundFjölbýlishúsStærð165,1 m²Herbergi4Svefnherb.2Baðherb.2
145.000.000 kr.878 þ./m²
Byggingarár2022InngangurSameiginlegurLyftaJáFasteignanúmerF2512121Fasteignamat121.500.000 kr.Brunabótamat99.950.000 kr.
Skráð hjá
Kjartan Ísak GuðmundssonLöggiltur fasteignasali, B.Sc í viðskiptafræði663-4392 · kjartan@miklaborg.is
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 47 myndir

Upp ↑