fasteignasölur.is
Strönd lóð 3
1 af 34

Um eignina

FANNBERG FASTEIGNASALA EHF, sími: 487-5028

SUMARHÚS Á STRÖND LÓÐ 3 Í RANGÁRÞINGI YTRA.
Um er að ræða 73,1 fm sumarhús, byggt úr timbri á steyptar undirstöður árið 2004 og er klætt að utanverðu með liggjandi timburklæðningu.  Að innanverður eru veggir og loft klædd með hvíttuðum panel.  Eignin telur:  Hol með parketi á gólfi.  Sambyggt eldhús og stofu með parketi á gólfi, ágætri innréttingu með eldavél, viftu, uppþvottavél, örbylgjuofni og ísskáp.  Tvöföld hurð er út á verönd úr þessu rými.  Tvö svefnherbergi með parketi á gólfum og skápum.  Baðherbergi með dúk á gólfi og plötum á veggjum.  Þar er sturta, handklæðaofn og hurð út á verönd.  Yfir hluta hússins er svefnloft.  Við húsið er útigeymsla og mhverfis það er timburverönd með heitum potti.  Innbú í húsinu fylgir með við sölu.  Húsið er staðsett við golfvöllinn á Strönd á Rangárvöllum.

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.

Allar nánari upplýsingar veita:
Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528, netfang: gudmundur@fannberg.is
Ágúst Kristjánsson lgf. gsm: 893-8877, netfang: agust@fannberg.is

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Strönd lóð 3

851 Hella (dreifbýli)
44.700.000 kr.611 þ./m²
Sumarhús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2004TegundSumarhúsStærð73,1 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22768047Fasteignamat37.750.000 kr.Brunabótamat45.650.000 kr.
Skráð hjá
Fannberg fasteignasala ehf.
HeimilisfangÞrúðvangi 18, 850 HellaSími487-5028

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 34 myndir

Upp ↑