fasteignasölur.is
Smáratorg 3
1 af 10

Um eignina

Ergon kynnir til LEIGU eignina Smáratorg 3, 201 Kópavogur.

Laust til leigu eitt glæsilegasta skrifstofuhúsnæði landsins. Um er að ræða efstu hæðina í Turninum með stórbrotnu útsýni til allra átta. Hæðin er afar glæsileg og vandað hefur verið til allra innréttinga og gólfefna. Um er að ræða hæð og millipall, samtals ríflega 900 fm.

Byggingin hefur um langt árabil verið afar vinsæl. Húsvörður er í byggingunni. Urmull bílastæða sem og rafbílastæði bæði í bílastæðakjallara og á stórum bílastæðaplönum úti allt í kringum bygginguna. Læst hjólageymsla er í kjallara byggingar ásamt sturtu- og búningaaðstöðu.

Turninn býður upp á marga góða kosti bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga en bygging hefur um langt árabil verið afar vinsæl hjá félaginu. Nýlega opnaði Brasa stórglæsilegan veitingastað á 2. hæð í byggingarinnar þar sem rekið er hádegisverðarstaður fyrir starfsfólk og viðskiptavini Turnsins í hádeginu. Húsvörður er í byggingunni. Urmull bílastæða sem og rafbílastæði bæði í bílastæðakjallara og á stórum bílastæðaplönum úti allt í kringum bygginguna.  Þá er hjólageymsla í byggingunni ásamt sameiginlegu sturtu- og búningaaðstöðu.


Nánari upplýsingar veitir:
Davíð Ólafsson lfs og löggiltur leigumiðlari,
tölvupóstur: david@ergon.is.
sími: 7666633.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í húsaleigulögum nr. 36/1994 er kveðið á um heimild aðila kalla til skoðunaraðila til úttektar á húsnæðinu fyrir afhendingu. Ergon bendir væntanlegum leigjendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Í tilfelli atvinnuhúsnæðis er ríkari heimild aðila að semja sig frá lögum og gildir þá ákvæði leigusamnings ef til ágreinnings kemur. 

Smáratorg 3

201 Kópavogur
Tilboð
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár2008TegundAtvinnuhúsnæðiStærð900 m²FasteignanúmerF22899671
Skráð hjá
GASTAD ehf
HeimilisfangLitlakrika 76, 270 MosfellsbærSími766-6633

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 10 myndir

Upp ↑