fasteignasölur.is
Gjáhella 17
1 af 14

Um eignina

Árni Björn Erlingsson lgf. og Fasteignaland kynna eignina Gjáhella 17, 221 Hafnarfjörður.

Eignin Gjáhella 17 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 251-0943, merkt 01-20, birt stærð 64.5 fm.

Lýsing:
Gengið er inn um sér inngang á neðri hæð en eignin er með innkeyrsluhurð með rafmagnsopnun (3,6 metrar á hæð). Á neðri hæðinni er rúmgóður salur með glugga á tvo vegu, salerni með klósetti, handlaug og skáp. Einnig er gert ráð fyrir þvottavél undir stiga. Efri hæðin er 30,3 fm með teppi á gólfinu, lítilli eldhúsinnréttingu og vandaðri lýsingu í loftinu. Brunaútgangur er af efri hæðinni og er búið að koma ál brunastigum fyrir utan á húsi. Vandaðir ál/tré gluggar á báðum hæðum með opnanlegu fagi. Sér rafmagnstafla með 3ja fasa rafmagni.Gólfhiti er á neðri hæð. Lóð er malbikuð og gert er ráð fyrir 40 bílastæðum.

Þvottakerfi fyrir bíla, þvottavél, og rúm fylgja ekki með í kaupunum.


Nánari upplýsingar veitir:
Árni Björn Erlingsson
Löggiltur fasteigna og skipasali.
arni@fasteignaland.is
898-0508

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignaland fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 . 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignaland
29.900.000 kr.464 þ./m²
+1,7% á 1 ári
17. desember 2025Þinglýstur kaupsamningur
29.400.000 kr.456 þ./m²
+27,8% á 2 árum
20. september 2023Fyrsta sala
23.000.000 kr.357 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Gjáhella 17

221 Hafnarfjörður
29.900.000 kr.464 þ./m²
Atvinnuhúsnæði1 bað
Byggingarár2022TegundAtvinnuhúsnæðiStærð64,5 m²Herbergi1FasteignanúmerF25109432Fasteignamat23.400.000 kr.Brunabótamat23.550.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignaland
HeimilisfangSkeifan 2, 108Sími599-6700

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 14 myndir

Upp ↑