fasteignasölur.is
Höfðabyggð 0
1 af 16

Um eignina

Við lokum aldrei!!!


Flott sumarhús í Lundsskógi
Húsið er timburhús á steyptum grunni auk gestahúss - samtals 166,7 m²

Bílskúr er undir húsinu og hann skráður 55,1 m² að stærð og er eitt opið rými fyrir utan salernisaðstöðu sem stúkuð hefur verið af með léttum vegg.
Hæðin sjálf er 96,4 m², búiuð að setja upp milliveggi og mála þá, baðherbergi eru tilbúin undir flísalögn eða annað efni, gólfefni og loftaklæðningar vantar.  Hurð er bæði til suðurs út á pall og til vesturs út úr húsinu.
Gestahús/skúr er á sunnanverður pallinum, skráður 15,2 m² að stærð og er góður aðstöðuskúr meðan á byggingu hússins stendur, nýtist líka frábærlega sem gestahús.  
Syðsti hluti pallsins og tröppurnar uppá pallinn eru nanast fullbúin, eftir er að klára verönd vestan við húsið, þar vantar varanlega gólfklæðningu (dekkið).  

Lóðin er 1 ha að stærð (10.000 m²) og stendur hátt í dalnum mneð tilkomumiklu útsýni, talverður gróður er á lóðinni

Byggingarstig hússins er nú fokhelt skv. gildandi stöðlum en búið að setja upp milliveggi, tengja lagnir fyrir heitt og kalt vatn.      
Áhugasömum er bent á að skoða eignina vel. 
 

Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar  773 5100  arnar@fastak.is



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Höfðabyggð 0

607 Akureyri (dreifbýli)
Tilboð
Sumarhús
Byggingarár2009TegundSumarhúsStærð166,7 m²Herbergi4FasteignanúmerF23188881Fasteignamat44.850.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasala Akureyrar
HeimilisfangSkipagata 1, 600Sími460-5151

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 16 myndir

Upp ↑