fasteignasölur.is
Sörlaskjól 66
1 af 32

Um eignina

Valhöll kynnir: Rúmgóð Íbúð við sjávarsíðuna á besta stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Íbúðin er 2ja-3ja herbergja með nýlegu eldhúsi, stofu, svefnherbergi og baðherbergi með glugga. Öll rými eru rúmgóð og sameiginlegt þvottahús er á hæðinni þar sem hver eigandi er með sína þvottavél. Miðhæðin er einnig til sölu.
Eignin er skráð 83,4 fm skv. HMS. Miklir möguleikar á breyttu skipulagi.
Nánari lýsing: 
Inngangur er frá jarðhæð bakgarðsmegin, en þar er forstofa og einnig gengið inn í þvottahús sem er sameign. 
Þvottahús er sameign og á sömu hæð og íbúðin. Allar 3 íbúðir hússins deila þvottahúsinu og hver er með sínar vélar.
Forstofa: frá forstofu er inngangur inn í íbúðina. 
Hol sem er á upphækkuðum palli. (lagnir eru undir upphækkun) Áður var stigi upp á efri hæðina frá holinu.
Eldhús með nýlegri hvítri innréttingu, gaseldavél  og nýlegum vaski. Rýmið sem nú er eldhús var áður herbergi. Skápur/fataskápur er í eldhúsi, en hann mætti færa. 
Tvö rúmgóð herbergi með fataskápum, annað þeirra getur verið notað sem stofa. Það sést út á sjóinn úr herberginu sem er merkt stofa á teikningu.
Flísalagt baðherbergi með upphengdu salerni og stóru baðkari. (er merkt herbergi til vinstri á teikningu). Geymsla undir útistiga innan baðherbergis. Gluggi á baði og góðar hirslur í skápum.
Íbúðin er ekki í samræmi við samþykktar teikningar. Farið er að sjá á klæðningu hússins og kominn tími á að endurnýja hana. 
Nánari upplýsingar veita: Elín Alfreðsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8993090 eða elina@valholl.is eða Óskar Bjarnasen lögmaður og löggiltur fasteignasali oskar@valholl.is

Sörlaskjól 66

107 Reykjavík
58.900.000 kr.706 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1951TegundFjölbýlishúsStærð83,4 m²Herbergi3FasteignanúmerF20266266Fasteignamat70.700.000 kr.Brunabótamat38.000.000 kr.
Skráð hjá
Valhöll
HeimilisfangSíðumúli 27, 108 ReykjavíkSími588-4477

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 32 myndir

Upp ↑