fasteignasölur.is
Smáratorg 3
1 af 23

Um eignina

Ergon kynnir til LEIGU eignina Smáratorg 3, 201 Kópavogur.

Turninn í Kópavogi, Smáratorg 3, er hæsta bygging landsins og útsýni stórfenglegt eftir því. Átjánda, þriðja, fjórða og sjötta hæð byggingar eru lausar til leigu en hæðirnar eru í kringum 811 fm hver. Flott útsýni til allra átta, sjón er sögu ríkari. Skrifstofuhæðirnar eru bæði með lokuðum skrifstofum/ fundarherbergjum og stórum opnum rýmum. Á tíundu hæð er laust í kringum 640 fm.
Turninn býður upp á marga góða kosti bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga en bygging hefur um langt árabil verið afar vinsæl. Nýlega opnaði Brasa stórglæsilegan veitingastað á 2. hæð í byggingarinnar þar sem rekið er mötuneyti fyrir starfsmenn hússins í hádeginu. Húsvörður er í byggingunni. Urmull bílastæða sem og rafbílastæði bæði í bílastæðakjallara og á stórum bílastæðaplönum úti allt í kringum bygginguna.  Þá er hjólageymsla í byggingunni ásamt sameiginlegu sturtu- og búningaaðstöðu.


Nánari upplýsingar veitir:
Davíð Ólafsson, lfs og löggiltur leigumiðlari,
sími: 7666633,
tölvupóstur: david@ergon.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í húsaleigulögum nr. 36/1994 er kveðið á um heimild aðila kalla til skoðunaraðila til úttektar á húsnæðinu fyrir afhendingu. Ergon bendir væntanlegum leigjendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Í tilfelli atvinnuhúsnæðis er ríkari heimild aðila að semja sig frá lögum og gildir þá ákvæði leigusamnings ef til ágreinnings kemur. 

Smáratorg 3

201 Kópavogur
Tilboð
Atvinnuhúsnæði
Byggingarár2008TegundAtvinnuhúsnæðiStærð811 m²FasteignanúmerF22899662
Skráð hjá
GASTAD ehf
HeimilisfangLitlakrika 76, 270 MosfellsbærSími766-6633

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 23 myndir

Upp ↑