fasteignasölur.is
Maríugata 28
1 af 36

Um eignina

RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Glæsileg þriggja herbergja 89,9 fm. íbúð á 3. hæð í nýlegu lyftuhúsi við Maríugötu 28, Urriðaholti. Íbúðin er skráð 85,8 fm. að stærð og skiptist í forstofu, opið eldhús til borðstofu og stofu með svölum til suðvesturs, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, opið hol og sérgeymsla staðsett í sameign. 

Myndavéladyrasími - Innréttingar og skápar af vandaðri gerð frá GKS trésmiðju - Harðparket frá Parki Interiors - Flísar á votrýmum frá Kermam Marazzi úr Álfaborg.

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Þetta er falleg og björt eign á eftirsóttum stað í Urriðaholti.  Stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir, ósnortna náttúru og góðar samgöngur.  


Nánari upplýsingar veitir Guðrún Lilja í síma 867-1231 eða með tölvupósti gudrunlilja@remax.is

Nánari lýsing: Aðkoman að húsinu og sameign er öll hin snyrtilegasta.  Sérinngangur af svölum er inn í íbúð. Lyfta er í húsinu.
Forstofa er flísalögð með góðum fataskápum.
Eldhús er í opnu og björtu rými til borðstofu og stofu. Í eldhúsi er vönduð Nobilia innrétting frá GKS trésmiðju, borðplata úr kvartssteini frá Silestone úr Steinsmiðjunni Rein og eldhústæki frá AEG. Innbyggður kæli-/frystiskápur og innbyggð uppþvottavél, ofn í vinnuhæð. Alrými bjart og rúmmgott með fallegu útsýni. Úr stofu er útgengt út á 10,9 fm. svalir til suðvesturs.
Svefnherbergin eru tvö, mjög rúmgóð og björt með fataskápum. 
Baðherbergi er með fallegri og stílhreinni vaskinnréttingu, spegill með innbyggðri lýsingu. Sturta með glerþili og upphengt salerni, tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísalagt er í hólf og gólf.
Sérgeymsla íbúðar 4,1 fm. staðsett í sameign á jarðhæð ásamt hjóla og vagnageymslu.
Bílastæði eru sameiginleg fyrir framan hús

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
79.900.000 kr.889 þ./m²
+15,5% á 4 árum
17. maí 2022Fyrsta sala
69.200.000 kr.770 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Maríugata 28

210 Garðabær
79.900.000 kr.889 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
Byggingarár2022TegundFjölbýlishúsStærð89,9 m²Herbergi3InngangurSérinngangurLyftaFasteignanúmerF251591714Fasteignamat79.900.000 kr.Brunabótamat63.450.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑