fasteignasölur.is
Reynidalur 1
1 af 33

Um eignina

Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Sérlega rúmgóð og björt 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi stórri suður timburverönd í fallegu nýju hverfi (Dalshverfi) í Njarðvík. Húsið er klætt og því sérlega viðhaldslétt. Gólfhiti er í öllum rýmum. Eignin skiptist í: forstofu, stórt alrými sem rúmar setustofu, borðstofu og eldhús, 3 góð svefnherbergi, baðherbergi, sér þvottaherbergi innan íbúðar og sér geymslu í sameign. Íbúðin er vel skipulögð í alla staði. Frá alrými er gengið út á mjög stóra timburverönd með skjólveggjum sem snýr í suður, mikið rými er á milli húsa og því ekkert sem skyggir á veröndina á björtum sólardegi. 
Örstutt er í grunnskóla, leikskóla og helstu þjónustu. 

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

Nánari lýsing eignar: 

Íbúðin er á jarðhæð í góðu tveggja hæða fjölbýlishúsi þar sem allar eignir eru með sérinngang og því lítil sameign í húsinu. 
Forstofa: Komið er inn um sérinngang inn í góða forstofu með flísum á gólfi og tvöföldum hvítum forstofuskáp sem nær upp í loft. Hurð með glugga skilur á milli forstofunnar og íbúðar. 
Alrými: Setustofa, borðstofa og eldhús. 
Setustofa:
Setustofan er rúmgóð með harðparketi á gólfi og stórum glugga. Setustofan er opin yfir að borðstofunni. 
Borðstofa: Borðstofan er á milli setustofu og eldhúss. Harðparket er á gólfi. Hurð út á veröndina er á milli borðstofu og eldhúss. Eyja skilur á milli eldhús og borðstofu. 
Eldhús: Eldhúsið er með góðri innréttingu á einn vegg með efri og neðri skápum auk eyju sem skilur á milli borðstofu og eldhús. Innréttingin er með neðri skápum í fallegu hnotuútliti og efri skápar eru hvítir. Svört grantíborðplata er á eldhúsbekkjum. Eldavél er í eyjunni með góðu vinnuplássi. 
Þvottaherbergi: Inn af eldhúsinu er sér þvottaherbergi með flísum á gólfi, vinnuvaski og hillum á vegg. 
Baðherbergi: Baðherbergið er rúmgott með dökkum flísum á gólfi og hvítum flísum á veggjum. Falleg innrétting er undir vaskaborði sem er úr svörtu graníti með ofan á liggjandi vaski. Baðkar er með sturtuaðstöðu og gleri. Handklæðaofn er á vegg við baðkarið. Salernið er upphengt. 
3 x svefnherbergi: Svefnherbergin eru þrjú. Öll herbergin eru með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum sem ná upp í loft. 
Geymsla: Sér geymsla er í sameign. Birt stærð geymslu er 7,5 m2. 

Reynidalur er staðsettur framarlega í Njarðvík þar sem stutt er út á Reykjanesbrautina og aðeins um 20 mínútna akstur að Hafnarfirði. Dalshverfið er í öri uppbyggingu. Göngufæri er í bæði grunnskóla (Stapaskóla) og leikskóla. Um er að ræða fallegt og rólegt fjölskylduhverfi. 

Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
69.900.000 kr.594 þ./m²
+52,0% á 5 árum
20. september 2021Þinglýstur kaupsamningur
46.000.000 kr.391 þ./m²
+230,9% á 9 árum
4. júní 2012Fyrsta sala
13.900.000 kr.118 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Reynidalur 1

260 Njarðvík
69.900.000 kr.594 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2008TegundFjölbýlishúsStærð117,6 m²Herbergi4InngangurSérinngangurFasteignanúmerF22987742Fasteignamat66.400.000 kr.Brunabótamat62.850.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 33 myndir

Upp ↑