fasteignasölur.is
Vatnsveituv. Fákur 0
1 af 25

Um eignina

Háborg fasteignasala kynnir: Tvær hesthúsastíur – 12,5% eignarhlutur í vönduðu hesthúsi í Faxabóli

Um er að ræða tvær vandaðar og vel við haldnar hesthúsastíur nr. 1-4 í einstaklega skipulögðu hesthúsi á frábærum stað í Faxabóli – beint á móti Fáksheimilinu, við hlið stórs tamningagerðis. Eignarhluturinn nemur 12,5% samkvæmt fasteignaskráningu og samsvarar tveimur tveggja hesta stíum. Mögulegt er að kaupa aðeins eina stíu (6,25%). Birt stærð fasteignarinnar er 160 fm ásamt 83 fm áfastri hlöðu, samtals 243 fm.
Húsið er í mjög góðu ástandi, með snyrtilegri aðkomu og stóru afgirtu gerði. Sameignin er snyrtileg og vel við haldið. Góð umgengni og samstaða meðal eigenda.

Aðstaða í sameign:
  • Glæsileg kaffistofa með mikilli lofthæð og suðursvölum
  • Þvottaaðstaða
  • Járningaaðstaða
  • Hnakkageymsla og hlaða
  • Fjögur búningsherbergi
  • Snyrting og geymsla
Aðrar upplýsingar:
  • Morgungjöf er aðkeypt og kvöldgjafir í vöktum
  • Hver stía er 6,25% af heildareign – hægt að kaupa aðskilið
  • Kaupandi þarf að vera félagsmaður í Hestamannafélaginu Fáki
Frábær staðsetning fyrir hestafólk sem vill tryggja sér framtíðaraðstöðu í einu eftirsóttasta hesthúsahverfi landsins.

Nánari upplýsingar veitir Katla Hanna Steed, löggiltur fasteignasali í síma 822 1661 eða katla@haborg.is

Vatnsveituv. Fákur 0

110 Reykjavík
7.900.000 kr.33 þ./m²
Hesthús1 bað
Byggingarár1966TegundHesthúsStærð243 m²InngangurMargir inngangarFasteignanúmerF205318018Fasteignamat28.180.000 kr.Brunabótamat45.500.000 kr.
Skráð hjá
Háborg fasteignasala
HeimilisfangGrensásvegur 1, 6. hæð, 108 ReykjavíkSími497-0031

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 25 myndir

Upp ↑