fasteignasölur.is
Meðalhraun 14
1 af 15

Um eignina

FANNBERG FASTEIGNASALA EHF. sími: 487-5028

MEÐALHRAUN 14 í LANDSVEIT.
Um er að ræða 32,9 fm sumarhús, sem staðsett er á 6.500 fm eignarlóð í skipulögðu sumarhúsahverfi í Fjallalandi í ofanverðri Landsveit.  Birkikjarr er á lóðinni og þarna er víðsýnt og fallegt útsýni, m.a til Heklu og Eyjafjallajökuls.  Húsið sem stendur á steyptum bitum, er byggt úr timbri árið 1987 og er klætt að utan með röstuðum krossvið.  Við húsið er rúmgóð timburverönd með skjólveggjum og heitum potti. Að innanverður eru veggir og loft klædd með panel.  Húsið telur:  Sambyggða stofu og eldhús, með parketi á gólfi og ágætri innréttingu. með gaseldavél.  Baðherbergi með dúk á gólfi og sturtuklefa.  Tvö svefnherbergi með parketi á gólfum.  Húsið er kynt með nýlegri varmadælu.  Hluti húsgagna getur fylgt með við sölu.  Við húsið er malarborið bifreiðastæði. og aðkomuvegur.

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf, gsm: 863-9528, netfang: gudmundur@fannberg.is

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Fannberg fasteignasala ehf.
16.900.000 kr.514 þ./m²
+65,7% á 3 árum
30. júní 2023Fyrsta sala
10.200.000 kr.310 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Meðalhraun 14

851 Hella (dreifbýli)
16.900.000 kr.514 þ./m²
Sumarhús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1987TegundSumarhúsStærð32,9 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF23426886Fasteignamat13.550.000 kr.Brunabótamat22.600.000 kr.
Skráð hjá
Fannberg fasteignasala ehf.
HeimilisfangÞrúðvangi 18, 850 HellaSími487-5028

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 15 myndir

Upp ↑