Um eignina
PERLA – HÚS Á SPÁNI Í 20 ÁR.
Perla Investments kynnir: Falleg einbýlishús í Las Filipinas, Orihuela Costa
Nútímaleg einbýlishús í Las Filipinas, Orihuela Costa, í litlu nýbyggingarverkefni með aðeins átta eignum á mjög góðum stað á Costa Blanca. Svæðið er vel þekkt íbúðahverfi með stuttri fjarlægð í verslanir, veitingastaði og alla helstu þjónustu, auk nokkurra af bestu golfvöllum svæðisins. Ströndin er í um 6 km fjarlægð.
Húsin eru um 140 m² á tveimur hæðum á rúmgóðum lóðum með einkasundlaug. Þau eru með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum (annað en-suite) og gestasalerni. Björt stofa tengist út á verönd og sundlaugarsvæði og eldhús er nútímalegt með eyju og góðu rými.
Efri hæð er með svefnherbergjum með innbyggðum skápum, þar sem hjónaherbergið er með sérbaðherbergi og útsýni yfir sundlaug. Hægt er að bæta við þaksvölum eða kjallara gegn aukakostnaði.
Eignirnar eru afhentar með vönduðum frágangi, þar á meðal loftræstiforlögn, gólfhita á baðherbergjum, rafmagnslokunum, viðvörunarkerfi og aðgangsstýringu fyrir bíla.
Mjög góð staðsetning með stuttri fjarlægð í golf, strönd og flugvelli, sem gerir eignirnar hentugar bæði sem fasta búsetu og orlofshús.
Þú finnur þessa eign inn á heimasíðu okkar á https://perlainvest.com/eign/7252/falleg-einbylishus-i-las-filipinas/
Ref: NB-57470
Fylgdu okkur á Facebook - www.facebook.com/Perlainvest
Kynntu þér svæðið, kaupferlið á Spáni og mikið úrval hágæða eigna á www.perlainvest.com eða sendu okkur línu á info@perlainvest.com . Allar upplýsingar eru veitar í síma 8933911 eða 0034-654832793.
Bjóðum einnig uppá á leiguþjónustu. Kynntu þér málið nánar á https://perlaholidays.com/ic/
Vertu velkomin í sérsniðna, allt að 7 daga, skoðunarferð til Spánar með flugi og gistingu. Hafðu samband til að fá frekari upplýsingar með því að senda
Perla Inv. - Falleg einbýlishús í Las Filipinas
Allar 19 myndir
Upp ↑

















