fasteignasölur.is
Hverfisgata 85
1 af 16

Um eignina

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Hugguleg og rúmgóð íbúð á jarðhæð með sérafnotareit við Hverfisgötu 85

* Hús byggt 2019
* Bílastæði í bílakjallara
* Frábær staðsetning í hjarta Reykjavíkur
* Laus við kaupsamning


Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignar er 67,90 m2 samkv. HMS

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu / borðstofu, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Eldhús er opið með stofu / borðstofu, hvít innrétting með borðplötu úr steini, þar er eldhúseyja með spanhelluborði og innbyggð uppþvottavél.
Stofa / borðstofa er með parket á gólfi, útgengt út á sérafnotaflöt.
Svefnherbergi er með parket á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt með walk-in sturtu, wc, innréttingu með handlaug og skápum og pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er í sameign skráð 8,3 m2 samkv. HMS

Bílastæði er í bílakjallara undir húsinu. Lyfta milli hæða.
Í sameign er einnig vagna og hjólageymsla.

Frábær staðsetning í miðborg Reykjavíkur þar sem stutt er í verslanir, kaffihús, veitingastaði, menningu og alla helstu þjónustu.

Í hluta af kynningarmyndum af íbúðinni hafa verið tölvuteiknuð inn húsgögn til að kynna nýtingu á eigninni.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Pálsson fasteignasala
68.900.000 kr.1015 þ./m²
+50,1% á 6 árum
25. nóvember 2020Fyrsta sala
45.900.000 kr.676 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hverfisgata 85

101 Reykjavík
68.900.000 kr.1.015 þ./m²
Fjölbýlishús1 bað
Byggingarár2019TegundFjölbýlishúsStærð67,9 m²Herbergi2InngangurSérinngangurBílskúrLyftaFasteignanúmerF25030704Fasteignamat76.150.000 kr.Brunabótamat56.780.000 kr.
Skráð hjá
Pálsson fasteignasala
HeimilisfangEngjateigur 3, 105 RekjavíkSímiPálsson

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 16 myndir

Upp ↑