fasteignasölur.is
Víðines 10
1 af 15

Um eignina

Húsaskjól fasteignasala og Anna Laufey Sigurðardóttir, löggiltur fasteignasali,     kynna sumarbústaða lóðina Víðines 10, 311 Borgarbyggð.                                                                    ***  Á þessari lóð er kominn sökkull.***


Smelltu hér á video linkinn:

 https://www.youtube.com/watch?v=FRjrlE3z6Xg

Yndislegar sumarbústaðalóðir, kjarri vaxnar, í friði, kyrrð og fegurð við Norðurá í Grábrókarhrauni. Um er að ræða 3.369 fm eignarlóð með púða og sökkli, í þyrpingu 24ra lóða á 10 hektara landi. Gert er ráð fyrir 129,4 fm húsi á lóðinni

Lóðirnar eru mismunandi að stærð og þeim kostum búnar að lítið sést til annarra bústaða á svæðinu. Þetta er land fyrir þá sem kjósa einveru og prívatlíf við fuglasöng í stórkostlegri náttúrufegurð. Golfvöllurinn Glanni í göngufæri. Að svæðinu hefur verið lagður vegur frá þjóðvegi með bundnu slitlagi og sams konar vegakerfi innan svæðis. 

Frárennslis-og skólplagnir: Fullkomið frárennslis-og skólpkerfi hefur verið byggt fyrir allt hverfið. Settar voru upp stórar rotþrær með 25 m seturlögn frá hverri rotþró. Kaupandi fær aðgang að kerfinu við lóðarmörk.

Aðrar lagnir: Búið er að greiða fyrir tengigjöld fyrir heitt og kalt vatn, skólp og fráveitukerfi að lóðarmörkum og ljósleiðaralögn inn í hverfið.

Öryggishlið er á vegi inn á svæðið. 

Lóðarverðið byggir á eftirfarandi þáttum sem fylgja með í kaupunum:

Eignarland, púði, sökkull, tengigjöld fyrir heitt og kalt vatn, skólp- og fráveitukerfi að lóðarmörkum, ljósleiðaralögn inn í hverfið, öryggishlið og vegakerfi.

Hikið ekki við að bóka skoðun, þetta er tækifæri fyrir þá sem kjósa náttúruperlu í rúmlega klukkustundar keyrslu frá höfuðborgarsvæðinu. 

 Eigum enn þssar sex lóðir í sölu:

Víðines 10 - Víðines 11 - Víðines 13 - Víðines 16 -  Víðines 15 og Víðines 19. Sjá mynd nr.3

Nánari upplýsingar veitir Anna Laufey Sigurðardóttir löggiltur fasteignasali, í síma 6965055, tölvupóstur anna@husaskjol.is.

https://www.husaskjol.is/thjonusta/anna-laufey-sigurdardottir

 

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

Víðines 10

311 Borgarnes (dreifbýli)
15.000.000 kr.4 þ./m²
Jörð/Lóð1 bað
Byggingarár2025TegundJörð/LóðStærð3369 m²FasteignanúmerF2318437Fasteignamat1.525.000 kr.
Skráð hjá
Anna Laufey SigurðardóttirLöggiltur fasteignasali696-5055 · anna@husaskjol.is
Húsaskjól
HeimilisfangHlíðarsmári 2, 5. hæð, 201 KópavogurSími519-2600

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 15 myndir

Upp ↑