fasteignasölur.is
Þessi eign er ekki lengur í sölu.
Skúlagata 40B
1 af 43

Um eignina


Gylfi Jens og Guðbjörg Helga löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX kynna Skúlagötu 40B, 101 Reykjavík.
Björt og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 2 hæð frá Skúlagötu / jarðhæð Barónstígsmegin þar sem er aðalinngangur í húsið. Íbúðin er í góðu fjölbýlishúsi með lyftu fyrir 60 ára og eldri með sérstæði í upphitaðri bílastæðahúsi.  Eignin er skráð 84,5 fm hjá Fasteignaskrá, þar af íbúðarhluti 69,5 fm og sérstæði í bílageymslu er skráð 15,0 fm. Rúmgóð verönd með ýmis tækifæri er við íbúðina. Í sameign er aðstaða með heitum potti, sauna og þrektækjum. Íbúðin getur verið laus við kaupsamning. 


                   **SÆKTU SÖLUYFIRLIT HÉR MILLILIÐALAUST** 

                   ** 3-D: SKOÐAÐU EIGNINA BETUR Í ÞRÍVÍDD OG MÁTAÐU ÞIG OG HÚSGÖGNIN ÞÍN MEÐ MÆLISTIKUNNI  - SMELLTU HÉR**

        NÚVERANDI SKIPULAG: 
Forstofa, sjónvarpshol, stofa, eldhús, baðherbergi, herbergi, hellulögð verönd og þvottaherbergi/geymsla innan íbúðar. Sérstæði í lokaðri upphitaðri bílageymslu.

        NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Gólfefni íbúðar er dúkur.
Forstofa: Rúmgóð með fataskáp.
Sjónvarpshol: Á ganginum er sjónvarpshol
Stofa: Björt og rúmgóð með útgengi út á hellulagða verönd (í eignaskiptasamningi er skilgreindur 36 fm sérafnotaflötur)
Eldhús:Viðarinnrétting, flísar á milli skápa.Eldavél og vifta. Opið inn í Stofu/borðstofu
Baðherbergi: Baðherbergið er með innréttingu með vaski og sturtu. 
Herbergi: Með rúmgóðum skápum eftir einum vegg. Gluggi.
Þvottahús/geymsla: Rúmgott og er staðsett innan íbúðar. Dúkur á gólfi.
Sérbílastæði í lokaðri upphitaðri bílageymslu fylgir íbúðinni. Stæðið er nr. A43. 

       SAMEIGN HÚSA NR. 40, 40A OG 40B 
  • þvottaaðstaða fyrir bílastæðaeigendur í bílastæðahúsi hússins.
  • Sameiginleg hjólageymsla.
  • Sameiginleg bílastæði í porti milli húsanna með innkeyrslu frá Klapparstíg (íbúar mega leggja í öll þau stæði) og einnig eru fleiri stæði neðan húss nr. 40 þar sem ekið er inn í bílastæðahús sem er á jarðhæð.
  • Sameiginlegt þurrkherbergi, stórt og með lökkuðu gólfi (í kjallara 40B)
  • SPA -aðstaða með heitum potti, sauna og þrekhjóli (nr 40)
  • Samkomusalur sem er leigður til viðburða (nr 40)
  • Húsvarðaríbúð sem er í útleigu (nr 40)
  • Innangegnt er á milli húsanna þriggja gegnum bílastæðahús. Lyklakóða eða rafmagnsdropa þarf til að opna dyr.
      FRAMKVÆMDASAGA
  • Nýlega var húsið múrviðgert og málað að utan (HÚSFÉLAG)
  • Þak, þakrennur og niðurföll endurnýjuð (HÚSFÉLAG)
  • Búið er að endurnýja alla hitaveituofna í íbúðinni (séreign)
Lóðin er falleg með tyrfðum flötum og hellulögðum stéttum með hitalögnum undir og næg bílastæði eru á lóð hússins Barónstígsmegin og einnig neðan húss Skúlagötumegin.

Félagsheimili Reykjavíkurborgar er í fimm mínútna göngufjarlæð að Lindargötu 59, en þar er hægt að vera í áskrift með heitan mat í hád7-)eginu og njóta starfsemi þjónustumiðstöðvarinnar sjá nánar hér: https://reykjavik.is/lindargata-59

Samantekið er þetta afar sjarmerandi og skemmtileg 2ja herbergja íbúð á vinsælum stað í miðborginni með einkabílastæði í lokaðri bílageymslu.

      ALLAR UPPLÝSINGAR VEITA:
Gylfi Jens löggiltur fasteignasali og lögmaður  í netfanginu gylfi@remax.is og síma 822 5124 
Guðbjörg Helga löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur í netfanginu gudbjorg@remax.is og síma 897 7712

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · RE/MAX
58.900.000 kr.697 þ./m²
+63,6% á 9 árum
17. ágúst 2017Þinglýstur kaupsamningur
36.000.000 kr.426 þ./m²
+100,0% á 5 árum
21. desember 2012Fyrsta sala
18.000.000 kr.213 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Skúlagata 40B

101 Reykjavík
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár1990TegundFjölbýlishúsStærð84,5 m²InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF200353819Fasteignamat66.550.000 kr.Brunabótamat46.990.000 kr.
Skráð hjá
RE/MAX
HeimilisfangSkeifunni 17, 108 ReykjavíkSími477-7777

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Sambærilegar eignir í hverfinu

Allar 43 myndir

Upp ↑