fasteignasölur.is
Tjarnarmýri 1
1 af 3

Um eignina

Sumarhúsalóð í frístundabyggð í landi jarðarinnar Mýrarkots í Grímsnes- og grafningshreppi. Svæðið liggur við Kiðjabergsveg.

Lóðin er eignarlóð.


Stutt er í golfvöllinn í Kiðjabergi, sem er af mörgum talinn einn fallegasti gólfvöllur landsins.

Á svæðinu er heitt vatn, kalt vatn og rafmagn.

Samkvæmt byggingar- og skipulagsskilmálum fyrir frístundabyggð í landi Mýrarkots er heimilt að byggja eitt sumarhús á lóðunum í hverfinu, allt að 200 fm að stærð, en auk þess er heimilt að reisa geymslu, svefnhús eða gróðurhús, allt að 25 fm stærð.

Svæðið er eftirsótt og stutt er í alla þjónustu, á Selfoss, Laugarvatn, Reykholt eða Gullfoss og Geysi. Tæplega klukkutíma akstur er til höfuðborgarsvæðisins.

Fallegt útsýni er af lóðinni og mikið fuglalíf.

Frekari upplýsingar veitir Þórir Helgi Sigvaldason lögmaður og lögg. fasteignasali í síma 823-7170 og thorir@haborg.is.

Tjarnarmýri 1

805 Selfoss (dreifbýli)
10.900.000 kr.
Jörð/Lóð
TegundJörð/LóðStærð0 m²FasteignanúmerF25063261Fasteignamat3.280.000 kr.
Skráð hjá
Háborg fasteignasala
HeimilisfangGrensásvegur 1, 6. hæð, 108 ReykjavíkSími497-0031

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 3 myndir

Upp ↑