fasteignasölur.is
Mjóstræti 3
1 af 26

Um eignina

Fasteignasalan Garður 

TVÆR ÍBÚÐIR. Góðar leigutekjur. 
Mjóstræti 3, 101 Reykjavík er frábær eign í hjarta miðbæjar Reykjavíkur, með mikla möguleika til útleigu. Íbúðin er endurnýjuð í kjallara með góðri lofthæð, en hún er 81 fm og búið að skipta upp í tvær snyrtilegar Íbúðir. Hlið með aðgangstýringu að bílastæðum. Hiti í hluta af gólfum. Frábær eign í sögufrægu húsi í Grjótaþorpinu.
Eignin eru á einu fastanúmer og skráð skv. HMS  alls 81,1 fm. 


íbúð 1:
Forstofa: Gengið er frá sameign í anddyri með fataskáp. Þaðan er gengið í önnur rými íbúðarinnar. Parketflísar á gólfi.
Eldhús: Rúmgott L-lagað með endurnýjaðri eldhúsinnréttingu með harðviðar borðplötu og backsplash flísum. Snyrtilegt útskot með glugga og geymsluplássi, nýtist vel sem vinnuhorn. Parketflísar á gólfi.
Stofa/Svefnherbergi: Í sameiginlegu rými. Gluggi, loftlistar og fallegur múrsteins skorsteinn setja skemmtilega svip á rýmið. Parketflísar á gólfi.
Baðherbergi: Góð innrétting, walk-in sturta, upphengt salerni og tengi fyrir þvottavél. Flísar í hólf og gólf.
Bílastæði: Á lóðinni eru stæði sem íbúar hússins hafa nýtt sér. Aðlaðstræti 6 og Mjóstræti 3 hafa fjárfest í símhringi hliði sem liggur inn á lóðirnar. 
íbúð 2:
Forstofa: Gengið er frá sameign í forstofu með góðum fataskáp. Flísar á gólfi.
Eldhús/stofa:  Saman í opnu rými. Snyrtileg endurnýjuð eldhúsinnrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Snyrtilegur borðkrókur í útskoti við glugga. Parket á gólfi
Svefnherbergi: Innst í stofu er svefnherbergis aðstæða með tvíbreiðu rúmi sem er í dag hálf aðskilið frá stofu en mætti aðskilja alveg. Bjart með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Góð innrétting, walk-in sturta, upphengt salerni og tengi fyrir þvottavél. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Íbúðirnar eru í sögufrægu húsi frá 1885 og staðsettar á yndislegum stað í Grjótaþorpinu.
Á hæðinni fyrir ofan eru einungis skrifstofur sem eru starfræktar á daginn.
Gæludýr eru fyrir í húsinu. Góðar almenningssamgöngur í nágrenni og stutt í alla helstu þjónustu og verslanir.
Eignin er ekki samkvæmt samþykktum teikningum og er skráð sem ein íbúð í eignaskiptasamning. 


Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

www.fastgardur.is |  Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður 

Verðsaga

3 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Garður
89.900.000 kr.1109 þ./m²
+83,5% á 8 árum
28. febrúar 2019Þinglýstur kaupsamningur
49.000.000 kr.604 þ./m²
−3,9% á 2 árum
30. janúar 2017Þinglýstur kaupsamningur
51.000.000 kr.629 þ./m²
+59,4% á 3 árum
12. maí 2014Fyrsta sala
32.000.000 kr.395 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Mjóstræti 3

101 Reykjavík
89.900.000 kr.1.109 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 2 bað
Byggingarár1885TegundFjölbýlishúsStærð81,1 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF22495546Fasteignamat71.050.000 kr.Brunabótamat43.050.000 kr.
Skráð hjá
Garður
HeimilisfangBæjarhraun 12, 220 HafnarfjörðurSími562-1200

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 26 myndir

Upp ↑