fasteignasölur.is
Hrísmóar 1
1 af 36

Um eignina

Nýtt á skrá! Hrísmóar 1 Garðabæ - Glæsileg og mikið endurnýjuð 4ra herb. íbúð með tvennum svölum í fallegu og vel viðhöldnu lyftuhúsi á besta stað í Garðabæ.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilega og sjarmerandi fjögurra herbergja íbúð við Hrísmóa 1 í Garðabæ. Eignin er 113,6 fermetrar að stærð með stórri stofu og tvennum svölum. Íbúðin var mikið endurnýjuð fyrir u.þ.b. 4-5 árum síðan þar sem m.a. eldhús, baðherbergi, innihurðir, ofnar, skápar og gólfefni var endurnýjað. Húsið lítur sömuleiðis vel út og hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum. Þá á húsfélagið íbúð á jarðhæð hússins sem það leigir út. Innkoma vegna þeirrar íbúðar rennur í hússjóð hússins. Auk þess er leyfi er til þess að setja upp svalalokanir við húsið. Næg bílastæði á lóðinni og er húsfélagið búið að setja upp rafhleðslustöðvar á lóð fyrir íbúa.

Um er að ræða frábæra fjölskylduíbúð á eftirsóttri staðsetningu við Garðatorg í Garðabæ. Öll helsta þjónusta í göngufjarlægð eins og sundlaug, heilsugæslustöð, apótek, verslanir og veitingahús. Stutt í leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með harðparketi á gólfi, skápum og fatahengi.
Stofa: Er rúmgóð, björt og með harðparketi á gólfi. Gluggar á tvö vegu (til suðurs og austurs). Stofa rúmar mjög vel setustofu og borðstofu.
Svalir I: Eru stórar og snúa til suðvesturs.
Eldhús: Var endurnýjað á virkilega fallegan máta. Stór eldhúsinnrétting með miklu skápa og vinnuplássi. Harðparketi á gólfi. Samsung bakaraofn, innb. AEG uppþvottavél og glæsileg Smeg gaseldavél. Borðpláss er inn af eldhúsi og útgengi á svalir I. 
Baðherbergi: Var endurnýjað á fallegan máta. Flísar á gólfi og veggjum að hluta. Flísalögð sturta með innb. og vönduðum blöndunartækjum. Innrétting við vask, upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun.
Þvottaherbergi: Málað gólf, innrétting/skápar, vaskur, handklæðaofn og tenglar fyrir þvottavél og þurrkara.
Hjónaherbergi: Með harðparketi, skápum og gluggum til suðasturs. Útengi á svalir II.
Svalir II: Snúa til suðausturs. Útgengi frá hjónaherbergi.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til suðausturs.
Svefnherbergi III: Með harðparketi á gólfi og glugga til suðvesturs.

Geymsla: Er staðsett í kjallara og er 4,5 fermetrar að stærð (merkt 32). Málað gólf og hillur.
Hjóla- og vagnageymsla: Er staðsett í sameign hússins. Málað gólf, hjólasnagar og útgengi á lóð.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Lind fasteignasala ehf.
86.500.000 kr.761 þ./m²
+60,2% á 5 árum
25. júní 2021Fyrsta sala
54.000.000 kr.491 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Hrísmóar 1

210 Garðabær
86.500.000 kr.761 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1984TegundFjölbýlishúsStærð113,6 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF20706791Fasteignamat81.500.000 kr.Brunabótamat57.750.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 36 myndir

Upp ↑