fasteignasölur.is
Íbúð í San Miguel de Salinas (499)
1 af 12

Um eignina

Zalt Properties kynnir 70 fermetra íbúð í vesturhluta San Miguel de Salinas, við hlið íþróttasvæðisins. Eignin er staðsett á rólegu svæði og öll helsta þjónusta er í göngufæri.

Íbúðin er á þriðju hæð, eða annarri hæð samkvæmt spænskum viðmiðum. Hún skiptist í bjarta stofu og borðstofu með opnu eldhúsi, tvö svefnherbergi og eitt baðherbergi. Úr íbúðinni er gengið út á 18 fermetra suðursvalir og henni fylgja einnig rúmgóðar, 55 fermetra þaksvalir þar sem hægt er að njóta sólarinnar.

Í byggingunni er lyfta og bílakjallari með beinni lyftutengingu við íbúðarhæðirnar. Eigninni fylgir bílskúrsstæði og íbúar hafa aðgang að sameiginlegri sundlaug. Íbúðin er seld með húsgögnum og heimilistækjum og er meðal annars búin loftkælingu og upphitun. 

San Miguel de Salinas er líflegur spænskur bær sem býður upp á alla nauðsynlega þjónustu fyrir heilsársbúsetu. Um 12 km eru að ströndum Orihuela Costa, um 5 km á næsta golfvöll og akstur til flugvallarins tekur um 45 mínútur.

Athugið: Verð eignarinnar í íslenskum krónum er birt til viðmiðunar og miðast við gengi evru á birtingardegi auglýsingarinnar á MBL Fasteignum. Breytingar á gengi evru geta haft áhrif á endanlegt kaupverð í íslenskum krónum.

Íbúð í San Miguel de Salinas (499)

1053 Spánn - Costa Blanca
23.900.000 kr.341 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn · 1 bað
TegundFjölbýlishúsStærð70 m²Herbergi3BílskúrFasteignanúmerF0
Skráð hjá
HeimilisfangAlmoradí 5, 03193Sími0034966194155

Allar 12 myndir

Upp ↑