fasteignasölur.is
Bláargerði 65
1 af 20

Um eignina

INNI fasteignasala 580 7905 auglýsir í einkasölu: Glæsilegt parhús sem er byggt árið 2019 og er samtals 165,5 fm að stærð þar af er íbúðarhluti 96,3 fm og bílskúr 69,2 fm. Eignin stendur á lóð sem býður upp á mikla möguleika til breytinga og stækkunar. Við lóðina er rólegt leiksvæði. 
Gengið er inn í forstofu með fataskáp og þar inni er háaloft. Frá forstofu er komið inn á gang. Hægra megin við ganginn er opið og bjart alrými með eldhúsi og stofu. Inn af alrýminu eru þrjú svefnherbergi öll rúmgóð og af svipaðri stærð. Parket er á gólfum í forstofu, gangi, alrými og svefnherbergjum.
Vinstra megin við forstofu er baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum upp í um 1,8 metra hæð. Á baðherberginu er rúmgóð sturta. Beint á móti baðherberginu er þvottahús með góðri vinnuaðstöðu og geymsluplássi og þar eru flísar á gólfi.
Frá gangi er innangengt í 69,2 fm bílskúr. Bílskúrinn býður upp á fjölmarga möguleika fyrir nýja eigendur, meðal annars stækkun á íbúðarhluta, viðbót við svefnherbergi eða útbúnað á sér rými eftir þörfum. Stærð bílskúrsins og skipulag eignarinnar skapa tækifæri til að aðlaga húsnæðið að breyttum þörfum fjölskyldunnar.
Húsið er búið innbyggðu ryksugukerfi.
Um er að ræða vel skipulagða eign frá árinu 2019 með góða nýtingu og mikla möguleika til framtíðar. 

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · INNI fasteignasala
92.800.000 kr.561 þ./m²
+30,7% á 2 árum
15. júlí 2024Fyrsta sala
71.000.000 kr.429 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Bláargerði 65

700 Egilsstaðir
92.800.000 kr.561 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 1 bað
Byggingarár2019TegundRað-/parhúsStærð165,5 m²Herbergi4InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF23399161Fasteignamat81.050.000 kr.Brunabótamat103.200.000 kr.
Skráð hjá
INNI fasteignasala
HeimilisfangFagradalsbraut 11, 700, EgilsstaðirSími580-7905

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 20 myndir

Upp ↑