fasteignasölur.is
Axlarás 50
1 af 55

Um eignina

Auður Magnúsdóttir löggiltur fasteignasali og Lind fasteignasala kynna nýtt og vandað endaraðhús á tveimur hæðum við Axlarás 50 í Áslandi Hafnarfirði. Eignin er skráð 222 fm og skiptist í forstofu, eldhús, stofu, fjögur svefnherbergi, þrjú baðherbergi, þvottahús, sjónvarpsherbergi og tvær geymslur.

Heimasíða verkefnisins má finna hér

Byggingaraðili: Þarfaþing hf.
Aðalhönnuður: Arkís arkitektar ehf.

Eigninni verður skilað á byggingarstigi 3/4 rúmlega tilbúið til innréttinga. Sjá skilalýsingu hér.
*Gólf eru tilbúin undir gólfefni.
*Allir veggir og loft innan íbúða eru sandsparslaðir og málaðir en lokaumferð skilin eftir.
*Innveggir aðrir en steyptir eru  hlaðnir úr Ytong hleðslusteini, sparslaðir og málaðir í ljósum lit án lokaumferðar.
*Loft í alrými eru tilbúin undir loftadúk.
*Gólfhiti hefur verið lagður og lagnakistur klárar án stjórnstöðvar.
*Búið er að leggja í steypu allar lagnir fyrir vélræna loftræsingu í hvert herbergi og gert ráð fyrir loftræsikerfi með varmahjóli til orkusparnaðar.
*Þvottahús skilast spörtluð og máluð án lokaumferðar, gólf tilbúin undir flísalögn.
*Baðherbergi skilast með spörtluðum loftum og hluta veggja aðrir veggir og gólf eru tilbúin undir vatnsvörn og flísalögn, að undanskyldum sturtubotni.

Lóð: lóðin verður fullfrágengin með burstuðu Lunawood sólpöllum og girðingum. Aðgengi verður hellulagt með snjóbræðslu samkvæmt lagnateikningum. Gróðurbeð verða grófjöfnuð en gróður fylgir ekki. Ídráttur fyrir rafbílahleðslu verður lagður.

Nánari lýsing:
2.hæð

Forstofa: Rúmgóð forstofa með góðu skápaplássi. Þakgluggi sem veitir birtu inní rýmið. Úr anddyri er gengið inní geymslu.
Geymsla: Innaf forstofu, flísar á gólfi, tvöföld útihurð. 10,6fm
Borðstofa/stofa: Rúmgott og bjart alrými, með útgengi út á sólpall. Stór gluggi sem gefur fallega birtu inní alrýmið.
Eldhús: opið við borðstofu/stofu. Útgengi út á sólpall.
Snyrting
Herbergi: 8,7 fm

1.hæð
Sjónvarpshol: 11,4 fm, Inna sjónvarpsholi er geymsla/lagnarými.
Geymsla: 5,6 fm.
Baðherbergi
Þvottahús: sér þvottahús. Möguleiki á að setja auka sturtu í þvottahúsi.
Hjónaherbergi: 12,0 fm, fataherbergi 6,0 fm. innaf hjónaherbergi er baðherbergi. Útgengi út á sólpall.
Herbergi: 8,7 fm. Útgengi út á sólpall.
Herbergi: 10,9 fm.

Nánari upplýsingar veitir Auður Magnúsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8482666, tölvupóstur audur@fastlind.is.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
 

Axlarás 50

221 Hafnarfjörður
154.300.000 kr.695 þ./m²
Rað-/parhús4 svefn · 2 bað
Byggingarár2025TegundRað-/parhúsStærð222 m²Herbergi5InngangurSérinngangurFasteignanúmerF252333415Fasteignamat91.150.000 kr.
Skráð hjá
Lind fasteignasala ehf.
HeimilisfangBæjarlind 4, 201 KópavogurSími510-7900

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 55 myndir

Upp ↑