fasteignasölur.is
Austurbrú 18
1 af 11

Um eignina

Helgafell fasteignasala kynnir til sölu - fjögurra herbergja íbúð með tvennum svölum á þriðju hæð merkt 0314 ásamt stæði í lokaðri bílageymslu merkt B15 í nýbyggingu við Austurbrú 18, Akureyri.

Arkitektar: THG arkitektar
Verktaki: JE Skjanni ehf.


Skoða heimasíðu verkefnisins við Pollinn

Íbúðin er samtals 139,9fm., þar af er geymsla 7fm.

Íbúðin:
Komið er inn í bjarta forstofu með skáp. 
Opið eldhús, með eyju, kvarts steinn á borðplötu og span helluborð.  Skúffur og skápar í eldhúsinu eru allar með ljúflokum.  Eldhúsinnrétting með kvarts stein, bakaraofn í vinnuhæð, innfelldur vaskur.  Allar skúffur og skápar með ljúflokum.  Innfelld lýsing frá Lumex.  Útgengt út á 7fm. vestur-svalir úr eldhúsi.
Stofa/borðstofa, er stór með útgengi út á svalir til austurs með glæsilegu útsýni yfir pollinn.
Hjónaherbergi er rúmgott, með baðherbergi (on-suite).  Góðir skápar. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með "walk-in" sturtu, kvarts stein á innréttingu og upphengt salerni. 
Tvö barnaherbergi með skápum.
Baðherbergi:  Sturta með glerskili.  Falleg innrétting frá Parka, kvarts steinn á borðplötu.  Upphengt salerni.  Skápur fyrir þvottavél og þurrkara, borðplata úr kvarts stein.

Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni

Allar innréttingar, innihurðir, skápar og Electrolux eldhústæki eru frá Parka.  Blöndunar- og hreinlætistæki eru frá Tengi.
Íbúðinni er skilað fullbúinni en án gólfefna.

Sameign er með glæsilegra móti.
Komið er inn í rúmgott anddyri. Flísar á gólfi frá kjallara og upp á pall fyrstu hæðar. 
Frá fyrstu hæð eru stigagangarnir teppalagðir.  
Innangengt úr hverjum stigagangi niður í lokaða bílageymslu og þaðan inn á Skáld Hótel sem hefur verið opnað.
Inngangur um bílageymslu í hótelið er einungis fyrir íbúðareigendur og hótelgesti.


Eigninni er skilað skv. skilalýsingu verktaka.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati þegar það leggst á eignina.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:

Sölumenn Helgafells fasteignasölu
Sími: 566 0000

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Austurbrú 18

600 Akureyri
132.500.000 kr.947 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 2 bað
Byggingarár2024TegundFjölbýlishúsStærð139,9 m²Herbergi4InngangurSameiginlegurBílskúrLyftaFasteignanúmerF25313645Fasteignamat97.550.000 kr.Brunabótamat95.100.000 kr.
Skráð hjá
Helgafell Fasteignasala
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 11 myndir

Upp ↑