fasteignasölur.is
Árkvörn 2a
Opið hús í dag kl. 18:00–18:30
1 af 39

Um eignina

Fasteignasalan TORG og Helgi Jónsson lgfs kynna : 
Gullfalleg 126,0 fermetra fjögurra herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) með einstöku útsýni yfir borgina. Sér inngangur af opnum svalagangi við Árkvörn 2a í Ártúnsholti. Góðar svalir til suðausturs inn í bakgarð hússins. Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Mjög rúmgott alrými með mikilli lofthæð sem skiptist í stofu, borðstofu og eldhús. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is


NÁNARI LÝSING : 
Forstofa:  með gólfsíðum glugga, vinylflísar á gólfi. Stofa: með gluggum til suð/austurs með útgengi út á góðar svalir, parket á gólfi. Borðstofa: með gólfsíðum gluggum og parketi á gólfi. Einstakt útsýni yfir borgina til norð/vesturs út á sundin, að Akrafjalli, Esjunni og yfir miðborgina. Eldhús:  með fallegri endurnýjaðri ALNO innréttingu, tveir Gorenje ofnar innbyggð uppþvottavél ásamt innbyggðum kæliskápur, vinylflísar á gólfi. Eldhús, stofa og borðstofa mynda eitt rými, mikil lofthæð og afar bjart rými. Gangur: með parketi á gólfi. Svefnherbergi I: með parketi á gólfi. Svefnherbergi II: með parketi á gólfi. Hjónaherbergi: með skápum á heilum vegg, parket á gólfi. Baðherbergi: með baðkari og sturtuklefa, innréttingu við vask, gluggi á baði, flísar á gólfi og veggjum. Þvottaherbergi: rúmgott og staðsett inn af forstofu, handklæðaofn, opnanlegur gluggi, flísar á gólfi. Sérgeymsla: er staðsett á jarðhæð innan sameignar og er hún ekki inn í FM tölu íbúðar. Einnig hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.

Húsið er byggt árið 1991 með hellulögðum stéttum og sameiginleg bílastæði fyrir framan hús. Mjög vinsæl staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi í Ártúnsholti í Reykjavík þar sem stutt er í grunnskóla og leikskóla. Frábærar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni. Stutt er í helstu stofnæðar þar sem hverfið er afar vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. 

Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is

Verðsaga

2 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Fasteignasalan TORG
90.900.000 kr.721 þ./m²
+18,8% á 2 árum
28. maí 2024Þinglýstur kaupsamningur
76.500.000 kr.607 þ./m²
+183,3% á 13 árum
7. apríl 2011Fyrsta sala
27.000.000 kr.214 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Árkvörn 2a

110 Reykjavík
90.900.000 kr.721 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1991TegundFjölbýlishúsStærð126 m²Herbergi5InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20440571Fasteignamat88.000.000 kr.Brunabótamat62.600.000 kr.
Skráð hjá
Fasteignasalan TORG
HeimilisfangGarðatorgi 5, 210 GarðabæSími520-9595

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 39 myndir

Upp ↑