fasteignasölur.is
Þverholt 9
1 af 41

Um eignina

Sleipnir fasteignasala kynnir:  Stór og vel skipulögð SJÖ herbergja íbúð á efstu hæð í reisulegu fjölbýli að Þverholti 9 í Mosfellsbæ, hæð og ris - með flottu útsýni.
SÝNUM SAMDÆGURS - BÓKIÐ SKOÐUN - S: 7721050
Miklum framkvæmdum utanhúss er nýlokið:  Málað að utan núna í sumar eftir múrviðgerðir, skipt um gler að hluta og gluggar málaðir.  Einnig er stutt síðan þakið var tekið í gegn og skipt var um pappa og bárujárn.  Mjög gott ástand á húsinu að utan eftir miklar endurbætur - eignin getur verið laus við kaupsamning.

Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, rúmgott eldhús, þvottahús, baðherbergi, stofu og borðstofu sem er allt á þriðju hæð.  Uppi um stiga úr stofu er gott sjónvarpshol og þrjú svefnherbergi.  Auðvelt er að gera sjötta herbergið á kostnað stofu á þriðju hæð ef fólk vill.  Íbúð, merkt 01-0301, birt stærð eignar er 155,1 m2 hjá HMS. 

NÁNARI LÝSING:
Neðri hæð:  Gengið er inn í forstofu með flísum á gólfi og góðum fataskáp.  Þar við eru 2 svefnherbegi með dúk á gólfi og fataskáp. Eldhúsið er stórt og bjart með ljósri innréttingu, tveimur útsýnisgluggum, borðkrók og gegnheilu eikarparketi á gólfi.  Inn af eldhúsinu er svo þvottahúsið dúklagt.  Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með ljósri innréttingu með handlaug, salerni og baðkari.  Stofan og borðstofan eru samliggjandi og bjartar þar sem hátt er til lofts, parketlagt með gegnheilli eik og útgengi á svalir (6,4 m2) sem snúa til suðvesturs.   Íbúðarareign á 3. hæð telst 104,1 m2 og 4. hæð 51,0 m2.
Efri hæð.  Þegar komið er upp á efri hæð er gott sjónvarps og alrými parketlagt með gegnheilli eik, úr alrýminu er gengið inn í þrjú svefnherbergi; eitt stórt með dúk á gólfi og tvö minni með gegnheilli eik á gólfum og Velux þakgluggum.  
Á stigagangi fyrir framan íbúðina er sérgeymsla svo er hjólageymsla í sameign á jarðhæð ásamt sorpgeymslu.

Sameign er snyrtileg með nýju teppi á stiganum og nýlega málað.  Fallegt útsýni er m.a. til Esjunnar, og Fellanna í næsta nágrenni.

Vel skipulögð og fjölskylduvæn eign á góðum stað, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla & íþróttir, heilsugæslu o.s.frv.

Allar nánari upplýsingar veitir
Jóhannes E. Levy, Löggiltur fasteignasali, í síma 7721050 eða tölvupósti

Þverholt 9

270 Mosfellsbær
99.900.000 kr.644 þ./m²
Fjölbýlishús5 svefn · 1 bað
Byggingarár1990TegundFjölbýlishúsStærð155,1 m²Herbergi7InngangurSameiginlegurFasteignanúmerF208501224Fasteignamat91.550.000 kr.Brunabótamat84.600.000 kr.
Skráð hjá
Sleipnir Fasteignasala
HeimilisfangKorngörðum 5, 104Sími772-1050

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 41 myndir

Upp ↑