fasteignasölur.is
Norðurnes 45-46
1 af 30

Um eignina

Helgafell fasteignasala kynnir til sölu vel staðsettan sumarbústað á sameinaðri 5.580fm. eignarlóð við Norðurnes 45 og Norðurnes 46 í Kjósinni.

Eignin er staðsett innst í sumarhúsahverfinu rétt við Svínadalsá á vel gróinni og ræktaðri lóð. 
Eigendur hafa getað nýtt sér sumarbústaðinn allan ársins hring.  Bústaðurinn er tengdur við hitaveitu.
Falleg lóð sem bíður upp á ýmsa möguleika s.s. að bæta við sumarbústað á lóð nr. 45.

Lýsing á bústaðnum:
Fallegur sumarbústaður sem var fyrst byggður 1978 en hefur verið mikið uppfærður og stækkaður. 
Búið er að bæta við svefnálmu með tveimur svefnherbergjum við bústaðinn. 
Rúmgóð stofa/borðstofa með kamínu og mikilli lofthæð.  Áður var svefnloft sem tekið hefur verið niður og lofthæðin nýtt. Gluggi settur á gaflinn til að gefa góða birtu inn í stofuna.  Útgengt úr stofu út á svalir. 
Opið eldhús við stofuna með snyrtilegri eldhúsinnréttingu og eldavél.
Tvö svefnherbergi annað mjög rúmgott.
Rúmgott baðherbergi með vask og salernisaðstöðu.

Nýlega var skipt um þak á bústaðnum.

Sumarhúsafélagið Norðurnes: 90 þkr fyrir árið nú en er annars ákveðið á aðalfundi hvers árs.
Grenndarstöð er við vegamót Meðalfellsvegar. Rotþró er tæmd á annað hvert ár.

Samkvæmt nýju Aðalskipulagi 2024-2036: 
Það má byggja í heild 200m2 á lóðinni, lóðin er 5580m2.
Smáhýsi undir 15m2 teljast ekki með í heildar byggingarmagni.


Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Helgafell fasteignasala - Sími 566 0000

Rúnar Þór Árnason, lgf., runar@helgafellfasteignasala.is

----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells

- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr.  92.380,- m/vsk.

Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga.  Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.

Norðurnes 45-46

276 Kjós
42.500.000 kr.763 þ./m²
Sumarhús2 svefn · 1 bað
Byggingarár1978TegundSumarhúsStærð55,7 m²Herbergi3InngangurSérinngangurFasteignanúmerF20865772Fasteignamat35.250.000 kr.Brunabótamat19.550.000 kr.
Skráð hjá
Helgafell Fasteignasala
HeimilisfangStórhöfða 33, 110Sími566-0000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 30 myndir

Upp ↑