fasteignasölur.is
Laufrimi 24
1 af 22

Um eignina

Þórhallur Biering fasteignasali sími 896-8232 og Betri Stofan kynna:  Bjarta og fallega 4ra herbergja endaíbúð í Rimahverfi með sérinngang af svalagangi. Íbúðin er á 3ju hæð (efstu). Sérmerkt bílastæði næst húsinu.

Komið  inn í flísalagt anddyri með góðum fataskáp.
Eldhús með ágætri innréttingu, opið í stofuna. 
Stofa/borðstofa með parketi á gólfi. Útgengt er á rúmgóðar vestur svalir úr stofu.
Baðherbergi er ný flísalagt. Upphengt salerni, handklæðaofn og baðkar með sturtu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.  
Hjónaherbergi með góðum skáp. Parket á gólfi.
Herbergi II með góðum skáp. Parket á gólfi.
Herbergi III með góðum skáp. Parket á gólfi.

Sérgeymsla á sameiginlegum geymslugang á jarðhæð.
Sameignleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.

Viðhald og endurbætur :
Nýdregið í allt rafmagn og nýir rofar og tenglar. 
Baðherbergi ný flísalagt sem og anddyri. 
Skipt um öll opnanleg fög og gluggar málaðir
Skipt um útihurðir í blokkinni árið 2019
Blokkin var múrviðgerð og máluð árið 2018
Skipt um klæðningu á svölum árið 2018
Móða er í einum glugga íbúðarinnar (herbergi 2). 
Skipta þarf um gler og þéttilista á nokkrum gluggum hússins  sem verður gert nú í sumar..
Ágætlega stæður framkvæmdasjóður. 

Næsta nágrenni : 
Leikskóli, Rimaskóli, Borgarholtsskóli  og verslunarmiðstöðin spöngin í göngufæri. 

Allar nánari upplýsingar gefur:
Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða thorhallur@betristofan.is   


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

1 þinglýstur kaupsamningur
Í sölu núnaÁsett verð · Betri Stofan fasteignasala
73.900.000 kr.745 þ./m²
+58,9% á 6 árum
10. mars 2021Fyrsta sala
46.500.000 kr.469 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Laufrimi 24

112 Reykjavík
73.900.000 kr.745 þ./m²
Fjölbýlishús3 svefn · 1 bað
Byggingarár1995TegundFjölbýlishúsStærð99,2 m²Herbergi5InngangurSérinngangurFasteignanúmerF221850837Fasteignamat70.150.000 kr.Brunabótamat50.750.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 22 myndir

Upp ↑