Um eignina
Glæsilegt þriggja svefnherbergja raðhús í El Galán – Orihuela Costa
Til sölu er rúmgott raðhús á tveimur hæðum í hinu vinsæla íbúðahverfi El Galán á Orihuela Costa.
Eigninni fylgir 81 m² útisvæði með einkabílastæði, bakgarði og stóru þaksvölusvæði þar sem njóta má sólarinnar.
Á neðri hæð er inngangur, björt stofa með opnu eldhúsi og útgengi í bakgarð, eitt svefnherbergi og baðherbergi með sturtu.
Á efri hæð eru tvö rúmgóð svefnherbergi, hvort með sínu sérbaðherbergi. Þaðan liggur stigi upp á stórt og sólríkt þaksvölusvæði.
El Galán er vel staðsett hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir og veitingastaði. Golfáhugafólk fær vart betri staðsetningu, en fjórir þekktir golfvellir eru í næsta nágrenni: Villamartín, Campoamor, Las Ramblas og Las Colinas.
Verð: 243.000 evrur
Til viðbótar við kaupverð má gera ráð fyrir um 12% kostnaði, þar af 9% virðisaukaskatti og allt að 3% vegna stimpil-, skráningar- og annarra kaupgjalda.
Athugið: Verð eignarinnar í íslenskum krónum er birt til viðmiðunar og miðast við gengi evru á birtingardegi auglýsingarinnar á MBL Fasteignum. Breytingar á gengi evru geta haft áhrif á endanlegt kaupverð í íslenskum krónum.
Ráðhús í Orihuela Costa (519)
Allar 32 myndir
Upp ↑






























