fasteignasölur.is
Laugavegur 86-94  403
1 af 24

Um eignina

Jason Kristinn sími 7751515 - netfang jason@betristofan.is og Betri Stofan fasteignasala kynna: Bjarta og rúmgóða íbúð á 4. hæð (efstu) í góðu lyftuhúsi. Svalir í átt að Laugavegi með útsýni í átt að Esju. Eignin skiptist í anddyri, þvottaherbergi, baðherbergi, svefnherbergi, svalir, eldhús,  geymslu. Sameiginlegar svalir eru á efstu hæðinni í vesturenda.
Laus við kaupsamninga og íbúðin selst fullbúin með húsgögnum. 

Komið er inn í anddyri með marmara á gólfi.
Á vinstri hönd er þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.  
Baðherbergi er rúmgott með stórum sturtuklefa og marmara á gólfi og veggjum. Stór speglaskápur með miklu geymsluplássi.
Eldhús, stofa og borðstofa eru samliggjandi með parketi á gólfum. Síðir gluggar veita mikla birtu inn í rýmið.
Eldhús innrétting er úr eik með uppþvottavél, bakaraofni og helluborði.
Svefnherbergi er með fataskápum og parketi á gólfi. Stór gluggi veitir mikla birtu inn.
Svalir eru hellulagðar og með glerþakskyggni.
Geymsla íbúðar er á stigagangum við hlið íbúðar, innangengt. 

Lyfta er í húsinu sem nær niður í bílastæðakjallara Reykjavíkuborgar
Bílastæði á baklóð fylgir íbúðinni en þau eru í óskiptri sameign.

Nánari upplýsingar veita:
Jason Kristinn Ólafsson, fasteignasali sími 775-1515 - jason@betristofan.is og 
Þórhallur Bieirng, fasteignasali sími 896-8232 - thorhallur@betristofan.is 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Laugavegur 86-94 403

101 Reykjavík
78.700.000 kr.1.350 þ./m²
Fjölbýlishús1 svefn · 1 bað
Byggingarár2006TegundFjölbýlishúsStærð58,3 m²Herbergi2InngangurSameiginlegurLyftaFasteignanúmerF22813283Fasteignamat63.500.000 kr.Brunabótamat48.450.000 kr.
Skráð hjá
Betri Stofan fasteignasala
HeimilisfangBorgartúni 30, 105 ReykjavíkSími519-0100

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 24 myndir

Upp ↑