fasteignasölur.is
Bjarmastígur 3
1 af 18

Um eignina

Nordik fasteignasala kynnir eignina Bjarmastígur 3, 600 Akureyri.
- Hafðu samband í síma 4621212 eða í tölvupósti á nordik@nordikfasteignasala.is -


*** Sjá myndband af eign hér ***

Bjarmastígur 3 er 101,6 fm. hæð í tvíbýlishúsi á frábærum stað við miðbæ Akureyrar. Falleg fasteign með útsýni yfir Eyjafjörðinn og miðbæ Akureyrar. Gengið er inn um sérinngang og upp stiga inn á bjart miðsvæði. Þaðan er gengið inn í bjart og vel skipulagt eldhús, flísalagt baðherbergi með sturtu, opinni stofu og 2 rúmgóð svefnherbergi, annað með góðum skáp og hitt með opnum skáp.

Nánari lýsing:
Forstofa: á jarðhæð hússins, flísalagt. Gengið er upp teppalagðan stiga upp á hæðina og niður í sameign.
Miðrými: Bjart miðrými með pússuðu hvítlökkuðu gólfi.
Eldhús: Er með innréttingu með góðu skápa og skúffuplássi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með innfelldri lýsingu, sturtu og upphengdi salerni.
Stofa: Opin og björt stofa, pússað hvítlakkað gólf. Frábært útsýni yfir miðbæ Akureyrar og yfir í Vaðlaheiði.
Hjónaherbergi: Er með pússuðu hvítlökkuðu gólfi og góðum fataskáp. Þaðan er gengið út á litlar svalir.
Svefnherbergi: Er með pússuðu hvítlökkuðu gólfi, opinn skápur.  Fallegt útsýni yfir miðbæ og yfir í Vaðlaheiði.
Þvottahús: Í kjallara hússins er sameiginlegt þvottahúss. 
Geymsla: Úr þvottahúsi er gengið í parketlagða geymslu með glugga og vask. Mætti nýta sem herbergi með lágmarks breytingum.

Annað: 
- Falleg eign í göngufæri frá miðbæ Akureyrar.
- Einstakt útsýni yfir miðbæ Akureyrar og yfir í Vaðlaheiði.
- Eignin var drenuð og jarðvegsskipt fyrir nokkrum árum.

Nánari upplýsingar veitir
Andres Már Magnússon lögmaður og lögg. fasteignasali, í síma 4621212 eða í tölvupósti á nordik@nordikfasteignasala.is 

​​​​​​Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Nordik fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Verðsaga

4 þinglýstir kaupsamningar
Í sölu núnaÁsett verð · Nordik fasteignasala
59.900.000 kr.590 þ./m²
+23,5% á 3 árum
14. júlí 2023Þinglýstur kaupsamningur
48.500.000 kr.477 þ./m²
+9,0% á 1 ári
6. október 2022Þinglýstur kaupsamningur
44.500.000 kr.438 þ./m²
+53,4% á 4 árum
30. nóvember 2018Þinglýstur kaupsamningur
29.000.000 kr.285 þ./m²
+34,3% á 5 árum
6. mars 2014Fyrsta sala
21.595.000 kr.213 þ./m²

Heimild: þinglýstir kaupsamningar, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Bjarmastígur 3

600 Akureyri
59.900.000 kr.590 þ./m²
Fjölbýlishús2 svefn
Byggingarár1939TegundFjölbýlishúsStærð101,6 m²Herbergi3FasteignanúmerF21452611Fasteignamat50.800.000 kr.Brunabótamat53.650.000 kr.
Skráð hjá
Nordik fasteignasala
HeimilisfangHafnarstræti 95, 600 AkureyriSími462-1212

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 18 myndir

Upp ↑