fasteignasölur.is
Álfhólsvegur 8A
1 af 100

Um eignina

Miklaborg kynnir: Virkilega gott raðhús á 3 hæðum. Möguleiki á aukaíbúð í kjallara (með sérinngangi), bílskúr og góðum bakgarði með palli og fallegum garði við Álfhólsveg 8A, 200 Kópavogi.
Falleg skjólsæl viðarverönd til suðurs með heitum pott og stór garður í rækt. Rúmgóður sólskáli út af stofu.


Allar nánari upplýsingar veitir Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is


Nánari lýsing
Fyrsta hæð: Gengið er upp tröppur og komið inn á 1. hæð. Gengið er inn í forstofu með flísum á gólfi og þaðan er gengið inn í hol með flísum á gólfi. Undir stiga er búið að útbúa gestasnyrtingu með salerni og vask. Eldhús er með U-laga innréttingu, efri og neðri skápum, flísar á milli skápa og borði í enda innréttingar, gluggi með útsýni og parket á gólfi. Samliggjandi stofa og borðstofa með parketi á gólfi og þaðan er gengið út í sólskála og þaðan í glæsilegan garð sem snýr í hásuður með palli með heitum potti.

Efri hæð: Gengið upp steyptan stiga með teppi. Þrjú rúmgóð svefnherbergi, öll með parketi og fataskápum. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni, handklæðaofn, opnanlegur gluggi.

Kjallari: Að stórum hluta óinnréttað rými. Með auðveldum hætti er hægt að útbúa íbúð þar með sérinngang. Gengið inn í forstofu og innaf henni er þvottahús. Gufubað og gestasnyrting.

Bílskúr er með bílskúrshurðaopnara, rafmagni og heitu og köldu vatni.

Garðurinn fyrir aftan húsið er skjólgóður og gróinn unaðsreitur, stór pallur með góðri aðstöðu fyrir útihúsgögn, grillið og fallegan, staðsteyptan heitan pott.

Álfhólsvegur 8A

200 Kópavogur
138.000.000 kr.626 þ./m²
Rað-/parhús3 svefn · 3 bað
Byggingarár1957TegundRað-/parhúsStærð220,5 m²Herbergi7InngangurSérinngangurBílskúrFasteignanúmerF2057960Fasteignamat125.850.000 kr.Brunabótamat98.550.000 kr.
Skráð hjá
Miklaborg
HeimilisfangHallgerðargata 13, 105 ReykjavíkSími569-7000

Staðsetning

Kortið hleðst þegar það kemur í sjónmál

Allar 100 myndir

Upp ↑